Eftir hverju sækist Vodafone hjá 365?

Fyr­ir­huguð kaup Voda­fone á ljós­vaka­miðlum 365 eru til umfjöll­unar í Tækni­varp­inu og spurn­ingum velt upp um hvað Voda­fone sæk­ist eftir í fyr­ir­tæk­inu 365. Í síð­ari hluta þátt­ar­ins er svo rætt við Ægi Má Þór­is­son, for­stjóra Advania, um Haust­ráð­stefnu Advania sem haldin verður í Hörpu föstu­dag­inn 9. sept­em­ber.

Sór­tíð­indi bár­ust á fjöl­miðla- og fjar­skipta­mark­aði á mið­viku­dag þegar til­kynnt var um einka­við­ræður milli móð­ur­fé­lags Voda­fone og 365 miðla um kaup á ljós­vaka- og fjar­skipta­eignum síð­ar­nefnda fyr­ir­tæk­is­ins. Ef af kaup­unum verður mun Voda­fone auka veltu sína um hátt í tíu millj­arða króna og vera mun betur í stakk búið til að keppa við sinn aðal­keppi­naut, Sím­ann sem þegar rekur víð­fema sjón­varps­þjón­ustu, á sjón­varps­mark­aði. Fjallað var um tíð­indin í frétta­skýr­ingu á mið­viku­dag.

Tæknivarpið ásamt Ægi Má Þórissyni.

Margar spurn­ingar vökn­uðu við þessar fregn­ir. Tækni­varpið veltir fyrir sér hvar virði 365 ligg­ur; hvort þau séu fyrst og fremst í verð­mætum samn­ingum um efni á borð við enska bolt­ann og við HBO. Áskrift­ar­sala á Stöð 2 hefur gengið illa und­an­farin ár og við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins boðin allskyns auka­þjón­usta til að gera áskrift­ar­pakk­ana meira heill­andi. Tækni­varpið er þess vegna sam­mála um að gríð­ar­leg sókn­ar­færi séu fyrir nýja eig­end­ur. Þá er óljóst hvað verður um frétta­stofu 365 miðla ef af kaupum Voda­fone verð­ur.

Á Haust­ráð­stefnu Advania mun kenna ýmissa grasa eins og venja er á þess­ari árlegu ráð­stefnu. Fjöldi fyr­ir­lestra verða í boði fyrir áhuga­fólk og hags­muna­að­ila í tölvu- og tækni­geir­anum á Íslandi. Ægir Már kynnir helstu við­burði ráð­stefn­unnar í ár.

Tækni­varpið hefur göngu sína á ný í Hlað­varpi Kjarn­ans eftir sum­ar­leyfi. Þátt­ur­inn verður á dag­skrá á föstu­dögum í vet­ur. Umsjón­ar­menn þátt­ar­ins eru Gunn­laugur Reynir Sverr­is­son, Atli Stefán Yngva­son og Egill Moran Rubner Frið­riks­son.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023