Ægir Már Þórsson, forstjóri Advania, er í heimsókn í Tæknivarpinu í dag í tilefni af haustráðstefnu Advania sem fram fer í Hörpu í dag. Hann ræðir við Tæknivarpsmenn um ráðstefnuna og framtíðina.
Umsjónarmenn þáttarins eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Atli Stefán Yngvason, Sverrir Björgvinsson og Jón Heiðar Þorsteinsson.
Auk þess að ræða um Advania spjalla þeir um Samsung-ást Jóns Heiðars, Xiaomi mi A1, allskonar Airpods-killers og framtíð peninga í snjalltækjum.