Tæknivarpið – AMD svarar NVidia og Airpods-lekar

Póst- og fjar­skipta­stofnun fram­kvæmdi neyt­enda­könnun á íslenskum fjar­skipta­mark­aði og gaf út nið­ur­stöð­urnar í vik­unni. Hægt er að lesa allar 164 blað­síð­urnar hér. Við rennum snögg­lega yfir nið­ur­stöður sem eru mjög viða­mikl­ar. 

Tækni­varpið fór í útvarps­við­tal og var skemmti­lega sakað um að vera falin aug­lýs­ing í Face­book grúpp­unni Mark­aðsnördar 🤓AMD svarar NVi­dia fullum hálsi með nýjum skjá­kortum sem gefa nýju RTX lín­unni ekk­ert eft­ir: RX6000 lín­unni. Cyber­punk 2077 hefur verið seink­að, aft­ur, og kemur út 10. des­em­ber. Önnur kyn­slóð Motorola Razr sam­an­brjót­an­lega sím­ans er komin út, og virð­ist ekki vera að heilla neinn nema Bjarna Ben.

Air­pods-­lekar eru byrj­aðir og koma frá Mark Gur­man hjá Bloomberg sem er tal­inn vera nokkuð traust­verð­ug­ur. Sam­kvæmt Gur­man koma ný Air­pods á næsta ári. Við eigum von á þriðju kyn­slóð af Air­pods og annarri kyn­slóð af Air­pods Pro. Air­pods eiga að fá styttri stilk eins og núver­andi Air­pods Pro. Air­pods Pro eiga að láta stilk­inn hverfa. Ein af helstu áherslum Apple í þróun Air­pods er lengri raf­hlöðu­end­ing.

Gleði­legan iPho­ne-dag! iPhone 12 og 12 Pro eru lentir 🛬

Stjórn­endur í þætti 253 eru Atli Stef­án, Elmar Torfa­son og Gunn­laugur Reyn­ir.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023