COVID-jól eru handan við hornið og við ætlum að kafa í tölvuleikina. Við fáum til okkar góðan gest, hann Snæbjörn Ragnarsson (einnig kallaður Bibbi), þungarokkara og hlaðvarpsstjórnanda.
Við ræðum stærstu leiki ársins og klúður ársins: Cyberpunk 2077. Við færum okkur svo í framtíðina og ræðum mest spennandi leikina sem eru væntanlegir á næsta ári.
Stjórnendur eru Bjarni Ben og Gunnlaugur Reynir.