Facebook segir að "lol" sé dautt - Emoji og "haha" er það sem er töff

h_50777800-1.jpg
Auglýsing

Það þykir ekki lengur flott að segja "lol" þegar þú þarft staf­rænt að hlæja. Mun meira móð­ins er að segja "haha" eða nota til­finn­inga­tákn, svokölluð emoji, til að skella uppúr í netheim­um. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem sam­skipta­miðl­aris­inn Face­book birti í síð­ustu viku. Í  skýrsl­unn­i ­greindu sér­fræð­ingar Face­book hvaða leiðir not­endur mið­ils­ins nota til að tákna hlát­ur. Rann­sókn­in, sem náði yfir banda­ríska not­endur síð­unn­ar, var fram­kvæmd í síð­ustu viku maí síð­ast­lið­ins. Í henni skoð­uðu sér­fræð­ing­arnir notkun á stytt­ingum eða táknum fyrir staf­rænan hlátur í stöðu­upp­færslum og ummælum við þær. Rann­sóknin náði ekki yfir sam­skipti fólks í einka­skila­boðum eða -sam­ræð­um.

Helstu nið­ur­stöður skýrsl­unnar eru þær að þeir sem nota "lol" (stytt­ing á laugh out loud) er eldri en þeir not­endur sem nota "haha" eða "hehe" þegar þeir hlæja stra­f­rænt. Flestir nota "haha" til að koma því á fram­færi að þeim hafi þótt eitt­hvað fyndið eða hlægi­legt. Um helm­ingur allra staf­rænna hlátra­skalla voru táknuð með þeim hætti. Emoj­i-­tákn voru notuð í þriðj­ungi til­vika  en ein­ungis 1,9 pró­sent not­enda eru ennþá að "lol-a". "Lol-ið" virð­ist því vera að fara sömu leið og áður vin­sælir sam­skiptafrasar á net­inu á borð við "rot­fl" (roll­ing on the floor laug­hing) og "Imao" (laug­hing my ass off), á ösku­hauga úr sér geng­inna tísku­fyr­ir­brigða.

Auglýsing


Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar sýnir einnig að það er munur á því hvernig kynin hlæja á Face­book. Konur er til að mynda mun lík­legri til að nota til­finn­inga­tákn til að lýsa hlátri sínum en karlar nota mun frekar "haha" eða "hehe". Hið nú hall­æris­lega "lol" er aðeins vin­sælla hjá konum en körl­um.

Wall Street Journal fjall­aði um rann­sókn­ina á síðu sinni í gær. Þar var rætt við mál­vís­inda­mann­inn Tyler Schnoebelen, sem sagði að það hafi komið sér á óvart hversu fáir séu enn að "lolla". Hann gagn­rýndi rann­sókn­ina fyrir að ná ekki yfir eina teg­und skrif­aðs hlát­urs sem njóti sívax­andi vin­sælda á sam­fé­lags­miðl­um, líka hjá ensku­mæl­andi not­end­um. Það er "ja­ja" eða "jeje", sem spænsku­mæl­andi fólk notar í stað "haha" eða "hehe".

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None