Apple gaf nýverið út nýtt Apple TV, sem styður 4K og HDR með mikilli endurnýjunartíðni (e. /high frame rate/). Tækið kom út á sama tíma út um allan heim og skartar nýrri fjarstýringu, sem er mun betri en forverinn.
WWDC-ráðstefnan hjá Apple hefst mánudaginn 7. júní næstkomandi. Svo er íslenska hornið og sporthornið að sjálfsögðu á sínum stað.
Stjórnendur í þætti 279 eru Gunnlaugur Reynir, Andri Valur, Sverrir Björgvinsson og Bjarni Ben.