Sinfóníuhljómsveit Íslands og tónlistarhúsið Harpa eru aðalatriði þáttarins í dag. Birgir Þór Harðarson fer á stúfana og ræðir um hljómsveitina við Árna Heimi Ingólfsson, listrænan stjórnanda Sinfó, og Arna Margrét Jónsdóttir, starfsmaður Hörpu, sýnir hvað leynist milli þilja í tónlistarhúsinu. Þetta er annar þáttur af þremur um Sinfóníuhljómsveit Íslands.