Baldur ræðir í þætti dagsins við Boga Ágústsson fréttamann á RÚV og fyrrverandi formann Norrænafélagsins og Stefán Ólafsson prófessor í félagsfræði um samskipti Íslands við Norðurlöndin.
Í þessum þáttum verða rannsóknir Baldur Þórhallsson prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands til umræðu. Baldur hefur unnið að rannsóknum í stjórnmálafræði í hart nær þrjá áratugi og sérhæft sig í rannsóknum á stöðu smáríki í Evrópu og utanríkisstefnu Íslands. Markmiðið með þáttunum er að miðla og ræða niðurstöður rannsókna um utanríkistefnu Íslands. Ætlunin er að leiða hlustendur út úr völundarhúsi umræðunnar um utanríkisstefnu Íslands inn á beina og breiða braut skýrrar umræðu um utanríkismál.
Þættirnir eru hluti af samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Rannsóknaseturs um smáríki við háskólans og hlaðvarp Kjarnans og liður í því að koma rannsóknum fræðimanna við Háskóla Íslands á framfæri utan akademíunnar.