Einfalt reikningsdæmi fyrir stjórnmálamenn

Auglýsing

Margir stjórn­mála­menn á Íslandi láta sig dreyma um eitt­hvað gríð­ar­lega stórt sem þeir geta slegið um sig. En þegar öllu er á botn­inn hvolft ­reyn­ist draum­ur­inn vera ógn­ar­smár. Þannig láta margir sig dreyma um gull og græna skóga með því að selja raf­magn til útlanda eftir að lagður hefur ver­ið rán­dýr raf­magns­strengur alla leið til Skotlands.

Á með­fylgj­andi töflu má sjá glöggt yfir­lit raf­magns­fram­leiðslu á Íslandi 2013. Þar kemur fram að allt upp­sett afl allra virkj­ana í land­inu var það árið tæp 2.800 MW og orku­vinnslan hafi verið rúmar 18.000 Gwst. Lands­virkjun fram­leiðir um tvo þriðju hluta alls raf­magns á Íslandi eða um 12.500 Gwst.

Tafla:  Raforkuframleiðsla á Íslandi árið 2013. Heimild:  Hagstofa Íslands – upplýsingar sótt á vefsíðu Hagstofunnar 2.11.2015.

Auglýsing




Nú er það svo að um þriðj­ungur millj­ónar íbúa Íslands nýt­ur um 20% af allri fram­leiddri raf­orku lands­ins gegnum almenn­ings­veitur en 80% fer í stór­iðj­una sem kunn­ugt er. Segjum sem svo að ef þessi raf­orku­fram­leiðsla yrð­i tvöfölduð með til­heyr­andi fórnum á við­kvæmri nátt­úru lands­ins og allur við­bót­ar­orku­forð­inn yrði afhentur til Skotlands. Þá væri með sömu þörf almenn­ings­veitna á Ísland­i og sama hlut­falli reikna með að við gætum útvegað raf­orku nær 2 millj­ónum manns í Skotlandi! Og tæp­lega þó því reikna mætti með tölu­verðu orku­tapi á þeim 1000 km langa raf­magn­s­kapli sem orkan fer um frá Íslandi.

Íbúar Glas­gow eru núna nálægt 1.2 millj­ónir með öll­u­m út­hverfum og Edin­borgar um hálf milljón manns þannig að hag­kvæm­ast væri að beina hugs­an­legri orku­sölu þang­að.

Dreifi­kerfi raf­orku hér­lendis er, vegna mik­ils strjál­býlis á Ís­landi, nokkuð óhag­kvæmt. Því má reikna með að dreif­ing orku um dreifi­kerfi í Skotlandi sé eitt­hvað hag­kvæmara og ætti því að nýt­ast fleir­um. Ekki er mér­ ­kunn­ugt um raf­magns­verð í Skotlandi til almenn­ings en lík­legt er að með aukn­u fram­boði á raf­magni muni það fremur lækka en hækka þó vænt­ingar um stór­gróða séu miklar hjá ein­föld­um ­stjórn­mála­mönnum á Íslandi.

Mættu þessar ábend­ingar vekja sem flesta til umhugs­un­ar­. Stórir draumar geta endað í martröð eina óveð­ur­snótt og þarf ekki vont veð­ur­ til. Mættum við fá að hafa nátt­úru lands­ins í friði fyrir ágeng­um ­stjórn­mála­mönn­um!

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None