Kerfi sem var „dauðanum helgað“ - Spurningar um peningastefnuna aðkallandi

9951316234-eb1a344909-z.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í við­tali við vef­inn Polit­ico.eu að Ísland hefði getað orðið gjald­þrota, ef Ísland hefði gengið í Evr­ópu­sam­bandið eða verið í því þegar þrengdi á fjár­mála­mörk­uðum fyrir sjö árum, og í eft­ir­leiknum árin á eft­ir.

Þetta er lík­ast til rétt hjá Sig­mundi Dav­íð, enda var vandi Íslands, haustið 2008 og mán­uð­ina og árin á eft­ir, svo yfir­þyrm­andi að ekk­ert annað en ein­stök neyð­ar­laga­setn­ing og stór­tækar aðgerðir á grund­velli hennar gat bjargað efna­hags­legu sjálf­stæði lands­ins. Lík­lega hefði aldrei verið hægt að grípa til hennar ef Ísland hefði ekki verið með eigin mynt og sjálf­stæðan seðla­banka. 

Eng­inn gat gert sér í hug­ar­lund að vandi banka­kerf­is­ins íslenska væri jafn mik­ill og raunin var, enda kom ekk­ert slíkt fram í árs­reikn­ingum bank­anna. Hvergi var þar að finna upp­lýs­ingar um að þeir fjár­mögn­uðu eigin hlutafé sitt langt umfram lög­leg mörk, eins og nú er algjör­lega óum­deilt.

Auglýsing

Davíð Odds­son, fyrr­ver­andi for­maður stjórnar Seðla­banka Íslands og nú rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, lýsti inn­an­meinum banka­kerf­is­ins, sem sáust ekki fyrr en allt var fallið eins og spila­borg - en hefðu átt að sjást fyrr - með eft­ir­far­andi hætti í and­mæla­bréfi sínu til rann­sókn­ar­nefndar Alþing­is. „Bank­arnir höfðu þá ber­sýni­lega verið not­aðir um langa hríð með gróf­asta hætti sem eins konar þrauta­vara­lána­stofn­anir fyrir yfir­skuld­sett og marg­veð­sett fyr­ir­tæki helstu eig­enda bank­anna og nán­ustu við­skipta­fé­laga þeirra. Rekstr­ar- og eigna­grund­völlur þeirra var því hrun­inn löngu fyrir þann tíma, sem í almennri umræðu og í þessum skýr­ingum hafa verið kall­aðir hrundag­arn­ir. Þess­ari stöðu verður helst líkt við að læknar „opni“ sjúk­ling með krabba­meinsein­kenni og verði þegar ljóst að hann var fyrir löngu dauð­anum helg­að­ur, og engin lækn­is­úr­ræði geri framar gagn.“

Alveg sama hversu oft það er taut­að, að ekk­ert hafi verið sér­stakt við íslenska banka­hrun­ið, í alþjóð­legu sam­hengi, þá breytir það ekki veru­leik­anum sem þurft hefur að glíma við. Staða mála á Íslandi var algjör­lega sér­stök, með 80 pró­sent af skuld­bind­ingum banka­kerf­is­ins, sem var tíu sinnum stærra en árleg lands­fram­leiðsla Íslands, í öðrum myntum en seðla­bank­inn gat útvegað eða prent­að.

Það var að mörgu leyti heppni að Íslandi hafi getað gripið til sjálf­stæðra aðgerða til þess að ná efna­hags­legum vopnum á nýjan leik, og sagan á vafa­lítið eftir að dæma end­ur­reisn­ar­starfið vel. Það breytir samt ekki því, að spurn­ingar um hvernig eigi að tengj­ast umheim­inum í fram­tíð­inni, þegar kemur að pen­inga­stefnu og alþjóð­póli­tísku sam­starfi, eru aðkallandi, og stjórn­mála­menn geta ekk­ert full­yrt um það núna, hvort vilji muni standa til þess í fram­tíð­inni, að breyta um stefnu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None