Að undanförnu hafa foreldrar í Reykjavík veitt ráðamönnum hjá Reykjavíkurborg, kjörnum fulltrúm og embættismönnum, ákveðið en málefnalegt aðhald, vegna þeirrar stöðu sem börn þurfa að lifa við í sínu frístundarstarfi, þegar þau æfa á gervigrasvöllum þar sem dekkjarkurli hefur verið dreift á velli.
Sé sérstaklega horft til Reykjavíkur, þá er dekkjakurl að finna á völlum víða á sparkvöllum, eða á í það minnsta fimmtán völlum, og svo er dekkjarkurl einnig á völlum sem íþróttafélög nota, meðal annars KR, Fram og Fylki. Einnig er að finna dekkjakurl á völlum víða á landsbyggðinni.
Áhyggjurnar vegna þessa eru með afar alvarlegan undirtón, svo ekki sé fastar að orði kveðið, en læknar hafa staðfest að efni í dekkjakurlinu séu stórhættuleg, og geti verið krabbameinsvaldandi og valdið ófrjósemi, svo eitthvað sé nefnt. Læknafélagið hefur komið á framfæri viðvörunum, vegna þessarar stöðu og erlendar rannsóknir hafa staðfest að dekkjakurlið geti verið heilsuspillandi. KSÍ vill af þeim ástæðum skipta um gras þar sem dekkjakurl er á völlum, en 111 sparkvellir eru vítt og breitt um landið.

Í ljósi upplýsinganna sem fram eru komnar í málinu, og málefnalegs aðhalds foreldra og íbúa, þá ættu borgaryfirvöld ekki að bíða með að grípa til aðgerða. Viðvaranir lækna og rannsóknir sem staðfesta heilsuspillandi efni á völlunum er nægileg ástæða til þess að forgangsraða í þágu þessa máls, og endurnýja vellina þannig að dekkjakurlið hverfi.