Donald Trump.
Donald Trump.
Auglýsing
Don­ald Trump, sem sæk­ist eftir því að fá útnefn­ingu Repúblik­ana sem for­seta­fram­bjóð­andi flokks­ins í Banda­ríkj­un­um, hefur átt góðu gengi að fagna í skoð­ana­könn­unum und­an­farna mán­uði. Hann hefur oft mælst með mesta fylgi allra fram­bjóð­enda, en þó verður að nefna það, að skoð­ana­kann­anir eru æði mis­jafnar og ýmis­legt má lesa út úr þeim. Meðal ann­ars að Repúblikanar virð­ast ekki treysta Trump sér­stak­lega vel.

Mál­flutn­ingur hans hefur oft verið á tæp­asta vaði, og í mörgum til­vikum hefur hann sett fram sjón­ar­mið - algjör­lega án rök­stuðn­ings - sem erfitt er að skýra öðru­vísi en sem hreina for­dóma.

Í gær steig hann yfir lín­una í þessum efn­um, og kom út úr skápnum sem for­dóma­fullur ein­feldn­ing­ur, þegar hann lagði til að öllum múslimum yrði bannað að koma til Banda­ríkj­anna. Þetta sagði hann vegna árásanna í San Bern­ar­dino í Kali­fornínu, þar sem fjórtán lét­ust og sautján særðust, í skotárás.

Ummælin standa eftir svo til alveg órök­studd, nema hvað hann lét fylgja með að það væru of margir múslimar sem vildu skaða Banda­rík­in. Á meðan svo væri þyrfti að koma í veg fyrir að þeir kæmu til Banda­ríkj­anna, allir með tölu, og þetta ætti líka að gilda um ferða­menn.

Fyrir utan hversu glóru­laus ummælin eru og ekki svara­verð, ekki síst út frá per­sónu­frels­is­sjón­ar­miðum og almennu sið­ferði, þá gæti verið hollt fyrir Trump að gefa sér góðan tíma til þess að kynna sér upp­lýs­ingar um skotárásir í Banda­ríkj­un­um, og velta fyrir sér hvort múslímar séu það sem helst skelfir almenn­ing í Banda­ríkj­un­um.

Á þessu ári er talið að fleiri muni deyja vegna skotárása í Banda­ríkj­unum heldur en vegna bílslysa, en slíkt þekk­ist hvergi í þró­uðu ríki. Talan nálg­ast óðfluga 35 þús­und manns­líf, miklu meira en sem nemur heild­ar­fjölda manns­lífa sem deyr á heims­vísu vegna hryðju­verka. Á hverja hund­rað þús­und íbúa deyja að með­al­tali 3,7 vegna skotárása ár hvert í Banda­ríkj­un­um, en með­al­talið í flestum öðrum þró­uðum ríkjum heims­ins nær ekki 0,4 og er algengt að það sé tölu­vert undir 0,2.

Auglýsing

Múslimar eru ekki þeir sem standa fyrir þessum árásum, nema þá í örsmáu hlut­falli af heild­inni. Trump hefur ekki séð neina ástæðu til þess að fjalla um það sér­stak­lega, en hann fellur beint í gildru hryðju­verka­manna sem vilja ala á ótt­anum meðal almenn­ings. Við­brögð hans við skotárásum, þar sem kristnir Banda­ríkja­menn hafa verið að skjóta sam­borg­ara sína, hafa til þessa verið þau að lík­lega hefði farið öðru­vísi ef fórn­ar­lömbin hefðu verið vopn­uð. Svipað mátt sjá haft eftir hon­um, eftir árás­irnar skelfi­legu í Par­ís.

Því miður hefur ótt­inn, í víð­asta skiln­ingi, oft verið áhrifa­mik­ill í banda­rískum stjórn­mál­um, eins og fylgið við Trump sýnir glögg­lega. En ósk­andi er að kjós­endur muni gera meiri kröfur til hans um rök­stuðn­ing og mál­efna­legan mál­flutn­ing, heldur en hafa birst í könn­unum til þessa. Eng­inn ætti að kom­ast upp með for­dóma­fullan boð­skap, eins og Trump hefur gerst sekur um að und­an­förnu, og von­andi mun hann ekki gera það þegar upp verður stað­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None