Nýir vendir sópa best

Auglýsing

Fjöldi ferða­manna sem heim­sækja Ísland hefur farið ört vax­andi á und­an­förnum árum og allar spár gera ráð fyrir áfram­hald­andi fjölg­un. Gert er ráð fyrir að gjald­eyr­is­tekjur vegna ferða­mála verði um 1000 millj­arðar króna árið 2030 en til sam­an­burðar er áætlað að heildar gjald­eyr­is­tekjur Íslands verði 1140 millj­arðar króna í ár. Með þessum vexti verða til mörg tæki­færi en jafn­framt áskor­an­ir. Huga þarf að upp­bygg­ingu inn­viða og vernd nátt­úr­unn­ar, sem er að sögn ferða­manna helsta aðdrátt­ar­afl lands­ins.

Vel­gengni íslensku ferða­þjón­ust­unnar varðar alla Íslend­inga. Árlegur fjöldi ferða­manna er marg­falt meiri en íbúa­fjöldi Íslands. Til að stand­ast og fara fram úr vænt­ingum þeirra þurfum við að beita okkur í mark­aðs­setn­ingu, bæta við afþrey­ing­ar­mögu­leika og finna nýjar leiðir til að auka gæði þeirrar þjón­ustu sem þegar er veitt.

Með það að leið­ar­ljósi hafa Íslands­banki, Bláa Lón­ið, Voda­fone og Isa­via, í sam­starfi við Íslenska Ferða­kla­s­ann og Klak Innovit, stofnað nýtt sam­starfs­verk­efni sem ber heitið Startup Tourism. Það er tíu vikna við­skipta­hrað­all þar sem allt að tíu sér­valin sprota­fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu fá tæki­færi til að þróa við­skipta­hug­myndir undir leið­sögn sér­fræð­inga. Þátt­tak­endur fá aðgang að full­bú­inni vinnu­að­stöðu á meðan á hraðl­inum stendur og einka­fundi með fjölda sér­fræð­inga, þar á meðal fjár­festa og reyndra frum­kvöðla. Auk þess stendur þeim til boða þjálfun og fræðsla á ýmsum sviðum sem er til þess fallin að hraða þróun við­skipta­hug­mynda og um leið gefst fjöldi tæki­færa til tengsla­mynd­unar sem hefur reynst dýr­mætt vega­nesti fyrir ný fyr­ir­tæki.

Auglýsing

Hrað­all­inn hefst 1. febr­úar 2016 og fer fram í Reykja­vík. Opið er fyrir umsóknir til 6. jan­úar 2016 á vef­síð­unni startuptouris­m.is. Þátt­taka í við­skipta­hraðl­inum er án end­ur­gjalds og ekki er tek­inn eign­ar­hlutur í þeim fyr­ir­tækjum sem taka þátt í hraðl­in­um.

Nú er rétti tím­inn til að taka þátt í mótun íslensku ferða­þjón­ust­unn­ar, til að tryggja fram­tíðar gjald­eyr­is­tekj­ur, atvinnu­tæki­færi og jákvætt orð­spor þjóð­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None