Sveitarfélög: Lítil hjúkrunarheimili verði gerð rekstrarfær

Heilbrigðismál

Kópavogur
Auglýsing

Á fundi stjórnar Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga var fjallað um stöðu og rekstr­ar­um­hverfi hjúkr­un­ar­heim­ila, og ályktað á þá leið að við ákvörðun „daggjalda hjúkr­un­ar­heim­ila verði tekið til­lit til hús­næð­is­kostn­aðar heim­il­anna, dag­gjöldin byggi á kröfu­lýs­ingum rík­is­ins og gæða­við­miðum Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins um starf­semi þeirra og smæð­ar­á­lag sé ákvarðað á þann hátt að lítil hjúkr­un­ar­heim­ili verði gerð rekstr­ar­fær.“



Fund­ur­inn var hald­inn föstu­dag­inn 29. jan­ú­ar.

Frá því í jan­úar 2015 hafa staðið yfir við­ræður milli Sjúkra­trygg­inga Íslands (SÍ) og Sam­taka fyr­ir­tækja í vel­ferð­ar­þjón­ustu (SFV) um gerð þjón­ustu­samn­inga, en hægt gengur að ná nið­ur­stöðu, að því er segir í frétta­bréfi Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga. 

Full­trúar hjúkr­un­ar­heim­il­anna hafa lagt áherslu á eft­ir­far­andi fimm þætti í við­ræð­un­um, að því er segir í frétta­bréf­inu:

Auglýsing

Greitt sé eðli­legt, sann­gjarnt og rétt verð fyrir þjón­ustu hjúkr­un­ar­heim­ila.

Greidd sé húsa­leiga til allra hjúkr­un­ar­heim­ila.

Gengið sé frá yfir­töku líf­eyr­is­skuld­bind­inga allra hjúkr­un­ar­heim­ila.

Auk­inn kostn­aður vegna launa­hækk­ana sé greiddur hjúkr­un­ar­heim­ilum með réttum og skil­virkum hætti.

Útfærslu á svoköll­uðu smæð­ar­á­lagi fyrir rekstur lít­illa og með­al­stórra hjúkr­un­ar­heim­ila.

Sviðs­stjóri hag- og upp­lýs­inga­sviðs sam­bands­ins hefur tekið þátt í við­æðum SVF við SÍ, sem full­trúi sam­bands­ins, og hefur þar gætt hags­muna þeirra hjúkr­un­ar­heim­ila, sem eru rekin með sveit­ar­fé­lög sem fjár­hags­legan bak­hjarl, en eru sum hver ekki aðilar að SVF. Eft­ir­far­andi ályktun var sam­þykkt sam­hljóða á fund­in­um:

„Á fundi stjórnar Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga, sem hald­inn var þann 29. jan­úar 2016, var staða samn­inga um dag­gjöld hjúkr­un­ar­heim­ila við Sjúkra­trygg­ingar Íslands rædd, svo og erfið fjár­hags­staða hjúkr­un­ar­heim­ila víða um land.

Stjórnin leggur áherslu á að við ákvörðun daggjalda hjúkr­un­ar­heim­ila verði tekið til­lit til hús­næð­is­kostn­aðar heim­il­anna, dag­gjöldin byggi á kröfu­lýs­ingum rík­is­ins og gæða­við­miðum Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins um starf­semi þeirra og smæð­ar­á­lag sé ákvarðað á þann hátt að lítil hjúkr­un­ar­heim­ili verði gerð rekstr­ar­fær.

Ef ekki er vilji til þess að ganga að þeim kröfum verði hafnar við­ræður um að rekstur við­kom­andi hjúkr­un­ar­heim­ila fær­ist alfarið til rík­is­ins. Einnig leggur stjórn sam­bands­ins ríka áherslu á að við­ræður um líf­eyr­is­skuld­bind­ingar hjúkr­un­ar­heim­ila hefj­ist sem fyrst.“



Í stjórn Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga eru tíu full­trúar sveit­ar­fé­laga af land­inu. Hall­dórs­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, er for­mað­ur, en auk hans eru Björn Blön­dal, frá Bjartri fram­tíð, og Skúli Helga­son, Sam­fylk­ing­unni, einnig full­trúar Reykja­vík­ur­borgar í stjórn­inni. Aðrir í stjórn eru Gunnar Ein­ars­son, bæj­ar­stjóri í Garða­bæ, Gunnar Axel Axels­son, bæj­ar­full­trúi í Hafn­ar­firði, Jón­ína Erna Arn­ar­dótt­ir, Borg­ar­byggð, Halla Sig­ríður Stein­ólfs­dótt­ir, Dala­byggð, Gunn­hildur Ingv­ars­dóttir Fljóts­dals­hér­aði, Eiríkur Björg­vins­son, bæj­ar­stjóri á Akur­eyri, Aldís Haf­steins­dótt­ir, Hvera­gerð­is­bæ, og Ísólfur Gylfi Pálma­son, Rangár­þingi eystra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None