Upprisa gegn Trump er upprisa gegn fordómum

Donald Trump
Auglýsing

Margir helstu for­ystu­menn Repúblikana­flokks­ins í Banda­ríkj­unum eru farnir að berj­ast hat­ramm­lega gegn Don­ald Trump, sem nú er lang­sam­lega vin­sæl­asti fram­bjóð­andi flokks­ins fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í nóv­em­ber. 

Sá sem hefur verið í mesta frum­kvæð­is­hlut­verk­inu í þeim efn­um, um nokk­urt skeið, er Paul Ryan, for­seti full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings og fyrr­ver­andi vara­for­seta­efni Repúblik­ana. Ryan, sem er 46 ára gam­all, hefur gagn­rýnt Trump harð­lega - en þó undir rós - að und­an­förnu, nú síð­ast fyrir að fjar­lægja sig ekki meira frá for­ystu­mönnum kyn­þátta­hat­urs­sam­tak­anna Ku Klux Klan. Þá var hann í hópi fyrstu manna til að halda blaða­manna­fund og mót­mæla hug­myndum hans um að banna múslimum að koma til Banda­ríkj­anna, og sagði þær aug­ljós­lega fara gegn stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna og ekki í takt við per­sónu- og trú­frelsi.



Ömur­legar frels­is­skerð­andi hug­myndir Trumps, eins og að loka á ferðir múslima til Banda­ríkj­anna og reisa vegg við landa­mærin við Mexíkó - á kostnað Mexíkóa að sögn Trumps - eru óra­fjarri hug­myndum sem Repúblikana­flokk­ur­inn stendur fyrir í grunn­inn. Glæst saga flokks­ins þegar kemur að afnámi þræla­halds, þar sem Repúblikan­inn Abra­ham Lincoln var kyndil­beri frels­ins og mann­rétt­inda, er í raun smánuð með þessum mál­flutn­ingi Trumps. Hann spilar á lægstu hvatir og stór­skaðar stjórn­málin í Banda­ríkj­un­um, og vegna þess hve þau hafa mikil áhrif, þá ýtir þetta við öfga­kenndum hugs­un­ar­hætti for­dóma­fullra víða um heim. 



Það er erfitt að stað­setja mann eins og Trump á póli­tískan kvarða. En það er hægt að benda á hið aug­ljósa. Hann er for­dóma­full­ur.



Von­andi mun Repúblikana­flokk­ur­inn hafa vit á því, þegar spurt verður að leikslokum í for­vali flokks­ins, að hafna ömur­legum for­dómum Don­ald Trumps, og velja frekar til for­ystu fólk sem getur vel staðið fyrir umdeild mál, en ber þó ekki með sér for­dóma, kyn­þátta­hyggju og sund­ur­lyndi sem vart á sér hlið­stæðu í Banda­ríkj­unum í seinni tíð­i. 



Kapp­ræð­urnar á Fox í nótt, þar sem full­trúar Repúblik­ana tók­u­st á, voru ekki til þess fallnar að auka bjart­sýn­ina, en und­ir­aldan í flokkn­um, sem virð­ist vera að koma upp á yfir­borð­ið, gæti þrýst málum í betri far­veg og úti­lokað með öllu að Don­ald Trump verði næsti for­seti Banda­ríkj­anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None