Mikilvægt að fá skýr svör við þessum spurningum

Hvernig hafa álfyrirtækin flutt tugi milljarða á ári úr landi eftir að fjármagnshöftum var komið á?

Ál
Auglýsing

Áhuga­verð fyr­ir­spurn liggur nú á borði Bjarna Bene­dikts­son­ar, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, sem hann þarf að svara. Hún snýr af fjár­magns­flutn­ingum álfyr­ir­tækj­anna þriggja, Rio Tin­to, Alcoa og Cent­ury Alu­m­inum, úr landi frá því að lög um fjár­magns­höft voru stað­fest á Alþingi í nóv­em­ber 2008. 

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, spurð­ist fyrir um mál­ið. 



Fyr­ir­spurnin er þessi: 



    1.     Hve mikið fé hafa álfyr­ir­tækin sem starf­rækt eru á Íslandi flutt úr landi eftir að gjald­eyr­is­höft voru sett, sund­ur­liðað eftir árum og fyr­ir­tækj­u­m? 

    2.     Hve stórum hluta af heild­ar­út­flæði gjald­eyris nam hluti álfyr­ir­tækj­anna hvert ár 2009– 2015? 

    3.     Hve mikið fé greiddi á sama tíma hvert og eitt álfyr­ir­tækj­anna árlega í vexti til erlendra lán­veit­enda ann­ars vegar og hins vegar í afborg­arnir af lánum erlendra lán­veit­enda? 

    4.     Hverjar voru arð­greiðslur álfyr­ir­tækj­anna á árunum 2009–2015? 

    5.     Hve mikil opin­ber gjöld greiddu álfyr­ir­tækin hér­lendis sömu ár? Óskað er eftir sund­ur­liðun fyrir hvert og eitt fyr­ir­tæki og að fjár­hæð­irnar séu bæði til­greindar á verð­lagi hvers árs og upp­reikn­aðar miðað við vísi­tölu í mars 2016.



Áhuga­vert verður að sjá svörin við þessum spurn­ing­um, og skýr­ingar á því hvers vegna fyr­ir­tækin hafa kom­ist upp með flytja tugi millj­arða úr landi í gjald­eyri á ári. Auð­vitað hefði Alþingi fyrir löngu átt að ræða um þessi mál fyrir opnum tjöld­um, og birta allar upp­lýs­ingar um þessi miklu fjár­magns­flutn­inga úr landi eftir að setn­ingu hafta. Ekki skorti á umræð­una, því fjöl­miðlar hafa bent á það, að þarna vanti skýr­ingar á aug­ljósum atrið­um. Almenn­ingur hefur þurft að sýna far­seðla fyrir gjald­eyri, og laga sig að skammta­kerfi sem stjórn­mála­menn settu á með lög­um.



En allir verða að vera jafnir fyrir lög­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None