Ljós vonar gegn hatri og illsku

brussel hryðjuverk
Auglýsing

Hryðju­verkin í Brus­sel eru skelfi­leg áminn­ing um það hversu mik­inn skaða hatur og illska getur skapað í sam­fé­lagi okk­ar. Hug­ur­inn er hjá þeim sem eiga um sárt að binda, og von­andi verða við­brögð þjóð­ar­leið­toga á þá leið, að þau veki upp von um frið og öryggi. Yfir­lýs­ingar Francois Hollande, for­seta Frakk­lands, þar sem hann stóð þrút­inn af reiði eftir hryðju­verkin í Par­ís, og lýsti yfir­ ­stríði gegn íslamska rík­inu, eru ekki endi­lega þau við­brögð sem telj­ast geta verið til fyr­ir­mynd­ar, og mikið umhugs­un­ar­efni hvort þau hafi skapað meiri ótta en minni þegar upp er stað­ið. 

Víg­völlur hryðju­verk­anna er óræð­ur, og um margt ósýni­leg­ur, nema þegar hann birtist, leift­ur­snöggt, sek­úndu­brotum áður en skað­inn er skeð­ur. Loft­árásir í fjar­lægum löndum geta ógnað lífi sak­lausra borg­ara þús­undir kíló­metra í burtu. Flókin mál sem þessi verða ekki leyst svo glöggt, og von­andi tekst með ein­hverjum ráðum, að skapa meira jafn­vægi í heim­inum þegar að þessu kem­ur. Upp­gangur öfga­hópa af ýmsum tóga, í Evr­ópu, Afr­íku og Band­ríkj­un­um, svo dæmi séu tek­in, vekur ugg í brjósti.



Það er ekki hægt að skýra það sem að baki liggur hryðju­verkum í stuttu máli, nema þá með hinu aug­ljósa, að þau eru birt­ing­ar­mynd hat­urs og illsku eins og áður sagð­i. 



Það á ekki að gera hryðju­verka­mönnum það til geðs, að gefa glæpum þeirra trú­ar­lega vængi, en þjóð­ar­leið­togar vest­ur­landa þurfa vafa­lítið að horfa inn á við og spyrja sig að því, hvort við­skiptapóli­tískt valda­brölt geti verið rótin að því að sjúka hug­ar­fari sem þarf til þess, að drepa sak­lausa borg­ara.



Sádí-­Ar­abía kemur upp í hug­ann þegar að þessu kem­ur, en Bretar og Banda­ríkja­menn hafa haldið hlífi­skildi yfir stjórn­ar­fari þar í landi - vegna við­skipta­hags­muna eins og öllum er kunn­ugt -  en stjórn­ar­far­ið ein­kenn­ist meðal ann­ars af hatri og illsku. Heim­ild­ar­mynd, sem fjöl­miðlar hafa fjallað um að und­an­förnu, sýnir hroða­legar gjörðir gagn­vart borg­urum í land­inu, konum og körlum, þar sem hatur og illska eru hluti af stjórn­ar­at­höfn­um. Nið­ur­læg­ing, ofbeldi, og aftökur í takt við siða­lög­mál mið­alda, eru dag­legt brauð.



Fámenn elíta, tengd fjöl­skyldu­bönd­um, rakar til sín olíu­auð­æfum sem gætu vel eytt miklum vanda­mál­u­m í heims­hluta sem er á barmi alls­herjareyði­legg­ingar vegna ­styrj­ald­ar. Þaðan sem víga­menn koma til að fremja hryðju­verk í Evr­ópu og víð­ar.



Þessi staða er mikið umhugs­un­ar­efni, svo ekki sé meira sagt.



Megi ljós vonar og góð­mennsku, slökkva hatur og illsku. Þó það verði seint og um síð­ir, og því miður lík­lega eftir frek­ari blóðsút­hell­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None