Samþykkt var á aðalfundi HB Granda hf. í dag að greidd verði 1,70 krónur á hlut í arð vegna ársins 2015 eða alls tæpur 3,1 milljarður króna. Arðurinn verður greiddur 29. apríl á þessu ári. Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá í lok arðsréttindadags sem er 5. apríl.
Samþykkt var að þóknun til stjórnarmanna vegna næsta árs verði 240.000 krónur á mánuði og formaður fái tvöfaldan hlut. Kjöri stjórnar var frestað samkvæmt úrskurði fundarstjóra til framhaldsaðalfundar, að því er fram kom á vef mbl.is.
Allir núverandi stjórnarmenn HB Granda drógu framboð sitt til baka á aðalfundi fyrirtækisins í gær, en deilur hafa verið í hluthafahópi fyrirtækisins að undanförnu. Kristján Loftsson og Rannveig Rist eiga meðal annars sæti í stjórninni.
Hvað sem líður deilum þá er rekstur þessa næst stærsta útgerðarfyrirtækisins landsins, á eftir Samherja, í góðu horfi, eins og hagnaðartölur og arðgreiðsla eru til marks um.