Tíu atriði sem hafa gerst samhliða forsetatíð Ólafs Ragnars

Óhætt er að segja að 20 ára forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar hafi verið söguleg. En margt hefur líka breyst á þessum langa tíma sem liðinn er frá því hann tók við sem forseti. Hann hyggst bjóða sig fram áfram í kosningunum í júní.

ólafur ragnar grímsson
Auglýsing

1.       Það hafa liðið tæp­lega 20 ár frá því Ólaf­ur Ragnar Gríms­son varð for­seti Íslands, árið 1996. Hann er sjálfur fæddur 14. maí 1943, og tók við emb­ætt­inu 53 ára.

2.       Í for­seta­tíð hans hafa farið fram fimm Al­þing­is­kosn­ing­ar. Árið 1999, 2003, 2007, 2009 og 2013.

3.       Hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Goog­le/Alp­habet var stofn­að t­veimur árum eftir að Ólafur Ragnar Gríms­son varð for­seti, af þeim Larry Page og Sergey Brin. Það er eitt áhrifa­mesta hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki heims­ins. Um það leyt­i ­sem Ólafur Ragnar tók við emb­ætti, hófu Page og Brin sam­starf við Stan­for­d há­skóla sem leiddi til stofn­unar fyr­ir­tæk­is­ins í tveimur árum síð­ar. Heild­ar­tekj­ur ­Google námu í fyrra 74,5 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um tæp­lega 10 ­þús­und millj­örðum króna.

Auglýsing

Stórfyrirtækið Google var ekki til þegar Ólafur Ragnar varð forseti.

4.       ­Miklar kerf­is­breyt­ingar urðu á fjár­mála­kerf­in­u ­með einka­væð­ingu sem hófst árið 1998, tveimur árum eftir að Ólafur Ragnar varð ­for­seti, og lauk með sölu á Lands­bank­anum og Bún­að­ar­bank­anum á árunum 2002 og 2003. Til þess að gera langa sögu stutta, þá hrundi allt fjár­mála­kerfið til­ grunna dag­ana 7. til 9. októ­ber 2008, eftir mikið vaxt­ar­skeið erlend­is, en með neyð­ar­rétti var komið í veg fyrir alls­herj­ar­þrot hag­kerf­is­ins og við­spyrna fyrir efna­hags­lega upp­bygg­ing­u varð mögu­leg.

5.       Fimm árum eftir að Ólafur Ragnar varð for­set­i var tekin upp flot­geng­is­stefna, árið 2001, sem lauk síðan með setn­ing­u fjár­magns­hafta í nóv­em­ber 2008, sem var hluti af neyð­ar­að­gerðum til að koma í veg fyrir alls­herj­ar­hrun alls hag­kerf­is­ins. Þetta tíma­bil var sögu­legt fyr­ir­ þær sakir að þetta er eina tíma­bilið frá því landið fékk sjálf­stæði þar sem við­skipti hafa verið alveg hafta­laus á gjald­eyr­is­mark­aði.

6.       Á sama tíma og Ólafur Ragnar tók við emb­ætt­i, ­nán­ast upp á dag, var ungur brasil­ískur leik­maður í fót­bolta, Ron­aldo að nafni, seldur fyr­ir­ ­met­upp­hæð frá PSV Eind­hoven í Hollandi til Barcelona á Spáni. Hann hafði leik­ið í fram­línu hol­lenska félags­ins, og meðal ann­ars verið í lið­inu með Eiði Smára Guðjohnsen, sem þá var átján ára gam­all. Ron­aldo átti eftir að eiga stór­kost­legan fer­il, þrátt fyrir alvar­leg hné­meiðsli. Hann var þrisvar sinn­um ­kos­inn leik­maður árs­ins hjá FIFA en hætti knatt­spyrnu­iðkun árið 2011. Þá var Ólafur Ragnar vita­skuld enn for­seti, og hefur verið það í fimm ár síð­an.

Ronaldo hinn brasilíski, spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Brasilíu, sama ár og Ólafur Ragnar varð forseti.

7.       Evr­an, gjald­mið­ill evru­land­anna í Evr­ópu, var lög­fest sem gjald­mið­ill 1. jan­úar 1999. Tveimur á hálfu ári eftir að Ólaf­ur Ragnar tók við sem for­seti.

8.       Elsti og víð­lesnasti frétta­mið­ill lands­ins á inter­net­inu, mbl.is, hóf að veita þjónstu á net­inu 2. febr­úar 1998. Frétta­þjón­usta á net­inu tók því að þró­ast hér á landi eftir að Ólafur Ragnar varð for­seti.

9.       Í­búum jarð­ar­innar hefur fjölgað um 1,3 millj­arða frá því Ólafur Ragnar varð for­seti. Þeir voru 5,8 millj­arðar árið 1996, en vor­u í fyrra 7,1 millj­arð­ur. Í Evr­ópu búa um 520 millj­ónir manna.

10.   Íbúum Íslands hefur fjölgað um ríf­lega 65 þús­und ­manns frá því Ólafur Ragnar tók við emb­ætti for­seta. Þeir voru 267 þús­und 1996 en voru í fyrra tæp­lega 333 þús­und.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None