Ali
Auglýsing

Muhammad Ali, sem lést á föstu­dag­inn, 74 ára að aldri, var einn áhrifa­mesti bar­áttu­maður fyrir mann­rétt­indum svartra á 20. öld­inni. Hann var stór­kost­legur box­ari, en áhrifin sem hann hafði á sam­fé­lagið í Banda­ríkj­un­um, ekki síst á fimmta, sjötta og sjö­unda ára­tug síð­ustu ald­ar, voru gríð­ar­lega mik­il.

Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, minnt­ist Ali á dán­ar­degi hans, og sagði hann hafa verið eina stór­kost­leg­ustu fyr­ir­mynd svartra í sög­unni. Hann hefði gert heim­inn betri með bar­áttu sinni, hug­rekki, sjálfs­trausti og oft óút­reikn­an­legri hegð­un. Hann hefði verið „sannur meist­ari“ sem hefði fært fólki, ekki síst svört­um, von. Fólk hefði séð í honum frjálsan mann sem hefði sjálf­stæða rödd.

Það eru blikur á lofti í Banda­ríkj­unum þessi miss­er­in, þegar kemur að mann­rétt­inda­bar­áttu, enda er mað­ur, sem er opin­ber­lega hlynntur mik­illi frels­is­skerð­ingu á grund­velli trú­ar­skoð­ana og kyn­þátt­ar, kom­inn lang­leið­ina með að verða full­trúi Repúblik­ana í for­seta­kosn­ing­unum í nóv­em­ber. Don­ald Trump er krist­al­tær ras­isti, sem elur á ótta og spilar á lægstu hvatir rasima. Það sama má segja um upp­gang slíkra við­horfa í öðrum lönd­um, meðal ann­ars í Evr­ópu. Þar er horft til þess að fá fram stuðn­ing frá fólki, með því að spila inn á lægstu hvatir mann­legrar til­veru.  

Auglýsing



Það er mik­il­vægt að minn­ast manna eins og Ali af mik­illi virð­ingu, því mann­rétt­inda­bar­áttan er enda­laus. Því miður geta vanda­málin blossað upp aftur og aft­ur. Það má ekki gleyma því, að svartir fengu ekki sæti á veit­ing­ar­stöð­um, fengu ekki heil­brigð­is­þjón­ustu og lifðu við stöðugan órétt, langt fram eftir 20. öld­inni. Ennþá má greina kerf­is­lægan órétt svartra í Banda­ríkj­un­um, þó staðan hafi batnað mik­ið. 

Meðal ann­ars vegna þess að menn eins og Ali þorðu að vaða fram á svið­ið, og tala hátt með stórum orð­um, gegn órétt­in­um. Von­andi koma aftur fram menn eins og Ali, þó það verði að telj­ast ólík­legt. Hann var ein­stak­ur, og sönn bar­daga- og mann­rétt­inda­hetja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None