druslugangan_19432731344_o.jpg
Auglýsing

Við­horf lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyjum til nauð­gana eru athygl­is­verð. Lög­reglu­stjór­inn, Páley Borg­þórs­dótt­ir, hefur verið tölu­vert í umræð­unni síðan Frétta­blaðið og Stöð 2 greindu frá því að lög­reglu­um­dæmið ætl­aði ekki að upp­lýsa strax um mögu­leg kyn­ferð­is­brot á kom­andi Þjóð­há­tíð í Eyj­um. Hún sagði flestar nauðg­anir „eiga sér stað á milli tveggja ein­stak­linga í lok­uðum rýmum þangað sem fólk fer yfir­leitt sjálf­vilj­ugt. […] Við erum ekki að sjá þessi brot, sem betur fer og von­andi munum við ekki sjá það og reynum að fyr­ir­byggja með öfl­ugri gæslu og svona, þessi almanna­fær­is­brot.“ 

Með öðrum orðum er lög­reglu­stjór­inn að segja að það sé ekki eðli­legt að upp­lýsa almenn­ing um nauðg­anir sem séu framdar í lok­uðum rým­um. En öðru máli gegni um „al­manna­fær­is­brot“ þar sem ofbeld­is­menn fremja brot - ekki í lok­uðum rým­um. Flestir á Þjóð­há­tíð eiga sín lok­uðu rými í tjaldi. Því má skilja lög­reglu­stjór­ann sem svo að ef konu er nauðgað í tjaldi, mögu­lega sínu eigin tjaldi sem hún fór inn í sjálf­vilj­ug, verði sú nauðgun ekki upp­lýst, enda ekki „al­manna­fær­is­brot.“ Ef kon­unni er hins vegar nauðgað fyrir utan tjald­ið, þar með ekki í lok­uðu rými, stafi almenn­ingi mögu­lega ógn af ofbeld­is­mann­inum og því verði nauðg­unin upp­lýst. Enda verði líka mögu­lega erf­ið­ara fyrir lög­reglu að þegja um brot sem fleiri gætu hafa séð. Stað­reyndin er samt sem áður sú að Eyja­menn hafa ein­ungis haldið þrjár Þjóð­há­tíðir síð­ustu 12 ár þar sem engin nauðgun var til­kynnt. 

Auglýsing

Ummæli lög­reglu­stjór­ans í ár koma fram í hápunkti und­ir­bún­ings­viku Druslu­göng­unnar árlegu, sem hefur það yfir­lýsta mark­mið að útrýma kyn­ferð­is­brot­um, hætta þögg­un­inni í kring um nauðg­an­ir, skila skömminni, segja frá, láta nauð­gara vita að það sé ekki í lagi að nauðga og und­ir­strika að þolendur kyn­ferð­is­of­beldis eigi ekki að skil­greina sig út frá ofbeld­inu. Það verður að telj­ast kald­hæðn­is­legt - og tákn­rænt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None