Hentugleikalýðræði

Nói Kristinsson
Auglýsing

Það eru til margar birt­ing­ar­mynd­ir lýð­ræðis en lík­lega er algeng­asta skil­grein­ingin út frá­ ­stjórn­mála­legu sjón­ar­miðum þar sem ein­stak­lingar fá að taka á­kvarð­anir um eigin hags­muni.

Á Íslandi er full­trúa­lýð­ræði þar ­sem við, sem kjós­end­ur, veljum okkur flokk, og þar með­ ein­stak­linga til að tala okkar máli, verja okkar hag. Við vilj­u­m að sá flokkur og þeir ein­stak­lingar sem við veljum séu fram­leng­ingar á vilja, hug­myndum og skoð­unum okk­ar. Vit­andi sam­t innst inni að það er eig­in­lega aldrei svo­leið­is.

Síðan er það lýð­ræðið sem birt­ist oft­ast í kringum börn. Það er lýð­ræði sem ég kýs að ­kalla hent­ug­leika lýð­ræði.

Auglýsing

„Já núna megið þið börnin góð á­kveða hvað er í mat­inn.“

„Súkkulaði­kaka mamma, við vilj­u­m súkkulaði­köku.“

„Já mamma, við systk­inin kjós­um­ súkkulaði­köku.“

„Ég held að það henti ekki nún­a... við skulum frekar hafa pasta... er það ekki miklu betra?“

Það er svo sem ekk­ert merki­legt við þessa teg­und af lýð­ræð­i... ef lýð­ræði er hægt að kalla. Þetta birt­ist í einu eða öðru formi í grunn­skól­um, leik­skól­u­m og heim­ilum þar sem börn vilja ráða ferð­inni og for­ráða­menn eða kenn­ara vilja leyfa það en hætta svo við þeg­ar ­nið­ur­stöð­urnar eru komn­ar.



Það sem er merki­leg við þessa ­teg­und af lýð­ræð­i... ef lýð­ræði er hægt að kalla, er að það birt­ist ekki bara hjá börn­um, þetta er það lýð­ræði sem við, íslenskir þegn­ar, upp­lifa hjá Fram­sókn­ar­flokknum og ­Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Þar sem rödd fólks­ins skiptir máli... þangað til hún hentar ekki skoð­unum þeirra. Þar sem vilj­i ­fólks­ins skiptir máli... nema þegar þeir eru ósam­mála.

Hvernig getum við leyft okkur að kjósa flokka sem afneita því sem við skil­greinum sem grund­vall­ar­rétt­indum í íslensku sam­fé­lagi? Afneita rétti þegna sinna þeg­ar ­kröfur eru um eitt­hvað.

Það eru háværar raddir í sam­fé­lag­inu um breyt­ingar sem aldrei koma, nú síð­ast hávært ­kall þar sem 75% Íslend­inga vilja setja heil­brigð­is­kerfið í for­gang og samt gera fjár­lög ekki ráð fyrir því. Fólk var ­kosið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu til að vinna að nýrri ­stjórn­ar­skrá, kosið var um atriði tengdum stjórn­ar­skránni.

Til hvers?

Nú, svo við héldum að við hefð­u­m lýð­ræði í land­inu þegar raunin er að við höfum ekk­ert um ­málið að segja, þegar það hentar þeim ekki. Svo kannski þá ætti maður að hugsa málið betur þegar kemur að kosn­ingum í haust... ef þær þá verða því kannski hentar það þeim ekki þessa stund­ina. Kannski við ættum að reyna að muna að það er lýð­ræð­i... og svo er það hentu­leika lýð­ræði.

Ég veit ekki um ykk­ur, en ég er orð­inn þreyttur á því að yfir­valdið komi fram við mig eins og ég sé krakki sem viti ekki bet­ur.

Höf­undur er mann­fræð­ing­ur, mennt­un­ar­fræð­ingur og Pírati.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None