Það vekur spurningar...

Gunnar Jökull Karlsson
Auglýsing

Þann 1. ágúst síð­ast­lið­inn birt­ist frétt á vef RÚV sem virð­ist ekki hafa farið neitt sér­lega hátt, sem er ein­kenni­legt miðað við inn­tak henn­ar. Þar er vitnað í færslu hátt­virts sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, Gunn­ars Braga Sveins­son­ar, þar sem hann segir að síð­ustu mán­uðir Ólafs Ragn­ars Gríms­sonar í emb­ætti veki spurn­ing­ar. Það er svosem ekki farið nánar út í það hverjar þessar spurn­ingar eru eða hvers vegna þær vökn­uðu, en það er merki­legt að þær skuli hafa vaknað hjá ein­hverjum með­limum Fram­sókn­ar­flokks­ins og þá mögu­lega Sjálf­stæð­is­flokks­ins líka, án þess að það sé vit­að.

Nú gæti ein­hver spurt af hverju það sé merki­legt. Ástæðan er frekar ein­föld. Allt frá Alþing­is­kosn­ingum hafa engar spurn­ingar vaknað um eigið ágæti hjá Fram­sókn og Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Það hafa engar spurn­ingar vaknað um það hvað sé almenn­ingi fyrir bestu. Það hafa, nota bene, engar spurn­ingar vaknað um hvað sé sið­ferð­is­lega rétt eða rangt. Og það hafa svo sann­ar­lega ekki vaknað neinar spurn­ingar um hvort standa eigi við þau lof­orð sem gefin voru fyrir kosn­ing­ar.

Við skulum ekki gleyma heims­met­inu sem slegið var vegna skulda­leið­rétt­ing­ar­innar þar sem að veita átti 240 millj­örðum króna til lækk­unar hús­næð­is­lána. Þegar á hólm­inn var komið nam úborg­unin hins­vegar 80 millj­örð­um. Afgang­inn átti að fjár­magna með sérigna­líf­eyr­is­sparn­aði þeirra sem vildu nýta sér það. Heims­metið var því í raun aðeins ævin­týri á blaði, og ekk­ert sér­lega vel ritað ef því er að skipta.

Auglýsing

Við skulum ekki gleyma bréf­inu góða sem hæst­virtur sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­ar­ráð­herra rit­aði í tíð sinni sem utan­rík­is­ráð­herra þar sem frek­ari við­ræður um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu voru slegnar út af borð­inu og enn­fremur var óskað eftir því að ekki yrði litið á Ísland sem umsókn­ar­ríki. Það vakti óneit­an­lega furðu í Brus­sel og einnig hér heima, og svo virt­ist sem þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um fram­hald við­ræðna hafi týnst ein­hvers­stað­ar. Mögu­lega var hún „lost in translation“.

Við skulum ekki gleyma til­færslu á veiði­heim­ildum smá­báta í Suð­ur­kjör­dæmi yfir í Skaga­fjörð og nágrenni sem er, merki­legt nokk, heima­byggð hæst­virts sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Þessi skerð­ing kom sér væg­ast sagt illa fyrir smá­báta­eig­endur syðra og varð til þess að þeir gátu í raun aðeins róið fjóra daga í júlí­mán­uði. Þetta vekur upp spurn­ing­ar.

Við skulum ekki gleyma Panama­skjöl­unum og Wintr­is. Þar var hæst­virtur (þá­ver­andi) for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins grip­inn í við­tali með allt lóð­rétt niður um sig. Eignir í skatta­skjól­um, vafn­ingar og mögu­leg skatt­svik voru afhjúpuð og fólk storm­aði á Aust­ur­völl í mót­mæla­skyni. Fleiri nöfn komu fram í skjöl­unum en fram­reiddar voru skýr­ingar og afsak­anir fyrir öllu sam­an. Lausnin var að for­sæt­is­ráð­herra segði af sér og hrókerað væri létt á milli stóla. Ákall um kosn­ingar strax voru virtar að vettugi og kosn­ingar boð­aðar að hausti „svo lengi sem það næð­ist að klára stóru málin fyrir þann tíma“. Það vakna óneit­an­lega spurn­ingar um það hver þessi „stóru mál“ eru, enda afar fátt um svör og ekk­ert fast í hendi.

Þetta ásamt fleiru vekur upp einmitt upp spurn­ingar og það mun stærri heldur en síð­ustu mán­uðir Ólafs Ragn­ars Gríms­sonar í for­seta­stóln­um. Er þetta það stjórn­ar­far og þau vinnu­brögð sem við vilj­um? Er þetta það sem við viljum kjósa yfir okk­ur? Er ekki komið nóg af spill­ingu og óráðsíu innan stjórn­kerf­is­ins og í sam­fé­lag­in­u?  Er ekki kom­inn tími á breyt­ing­ar? 

Ég hvet ykkur öll til að skoða vel þá val­mögu­leika sem standa til boða í næstu Alþing­is­kosn­ingum sem ættu að öllu jöfnu að fara fram á haust­mán­uðum (svo lengi sem stóru málin verði kláruð). Ég hvet ykkur öll til brjóta upp þetta mynstur sem við höfum búið við und­an­farna ára­tugi. Ég hvet ykkur öll til að hrópa NEI gegn stöðnun og óbreyttu ástandi og kjósa breyt­ingar til hins betra.

Við eigum það öll skil­ið.

Grein­ar­höf­undur er á próf­kjörs­lista Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None