Landsbyggðin fyrir alla!

Rúnar Gíslason
Auglýsing

Þó að, með því að gefa kost á mér í eitt af efstu sæt­unum í kom­andi próf­kjöri VG, sé ég í raun að sækja um inni­vinnu í miðbæ Reykja­vík­ur, þá eru það mál­efni lands­byggð­ar­innar sem mest brenna á  mér. Betri sam­göng­ur, betra heil­brigð­is­kerfi og ljós­leið­ari hring­inn í kringum landið eru þau mál sem ég vil setja í algjöran for­gang. Þetta eru mál­efni lands­byggð­ar­innar ekki síður en höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Í umræð­unni um nýtt hátækni­sjúkra­hús í Reykja­vík gleym­ist stundum að það eitt og sér leysir ekki allan vanda. Fólk heldur áfram að veikj­ast á lands­byggð­inni og sama hversu hátækni­legt hátækni­sjúkra­húsið er þá þarf að vera hægt að veita fólki lág­marks aðhlynn­ingu í hverju byggð­ar­lag­i. Að sjálf­sögðu verður nýja sjúkra­húsið kær­komið fyrir alla lands­menn og verður sjúkra­hús allra Íslend­inga. Fólk á hins­vegar ekki eftir að fara þangað frá Fáskrúðs­firði vegna fing­ur­brots eða frá Tálkna­firði vegna tábrots. Það má ekki gleyma nær­þjón­ust­unni sem er alveg jafn nauð­syn­leg. Í mínum heimabæ er staðan þannig núna að loks þegar maður kemst að hjá lækni þá eru miklar líkur á að maður sé búinn að gleyma hvað var að manni. Hér er úrbúta þörf.

Það er líka veru­legra úrbóta þörf í vega­málum í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sér­stak­lega. Slysta­tíðni er há á vegum á Vest­fjörðum og Vest­ur­landi, sér­stak­lega og sum­staðar standa lélegir vegir atvínnu­líf­inu fyrir þrifum hrein­lega, sér­stak­lega á sunn­an­verðum Vest­fjörð­um.

Auglýsing

Varð­andi upp­bygg­ingu í vega­málum á kerfið að vera ein­falt og leið­in­legt! Ein­falt að því leyti að for­gangs­röðun að ráð­ast af þörf og nauð­syn en ekki af því að maður þekki mann. (Þing­mann). Leið­in­legt fyrir póli­tíku­sana að því leyti að þeir fái ekki að ráðskast með mal­biks­metra eftir því hvar ber best í atkvæða­veiði.

Í allri umræð­unni um að það þurfi með ein­hverjum ráðum að fá unga fólkið aftur heim í hinar dreifðu byggðir þá gleym­ist stundum að þar er bara fullt af ungu fólki nú þeg­ar. Fólk sem er á fullu að byggja upp sína fram­tíð. Ungt fólk sem hefur tekið við af næstu kyn­slóð eða er að búa sér til sín eigin tæki­færi bara með sínum hæfi­leikum og þekk­ingu. Almenni­legar vega­sam­göngur eru meðal þess sem þarf til að ungt fólk vilji áfram búa á lands­byggð­inni. Líka það sem þarf til að ungt fólk vilji flytja út á land.

Raf­rænar sam­göngur skipta ekki minna máli. Ekki síst fyrir ungt fólk. Góðar netteng­inar skipta orðið máli í nán­ast hverju sem þú tekur þér fyrir hend­ur. Í ferða­þjón­ustu, fisk­vinnslu, land­bún­aði, iðn­aði hvers­kon­ar, mennta­stofn­unum og skap­andi grein­um, svo dæmi séu tekin er nauð­syn­legt að hafa aðgeng að góðri netteng­ingu.

Það eru bull­andi sókn­ar­færi núna fyrir lands­byggð­ina. Víð­ast hvar á lands­byggð­inni er næg atvinna og jafn­vel ríf­lega það. Fjöl­skyldu­vænt umhverfi, nálægð við nátt­úr­una, allt (alla­vega flest) við hend­ina og minna stress og læti eru meðal búsetu­kosta sem lands­byggðin getur boðið upp á. En til að lands­byggðin sé sam­keppn­is­fær við höf­uð­borg­ar­svæðið um íbúa þá þarf að vera hægt að bjóða upp á góða heil­brigð­is­þjón­ustu, akfæra vegi og ljós­leið­ara.

Ég vil að ungt fólk eigi val um hvar það býr í fram­tíð­inni.

Höf­undur gefur kost á sér í 1. – 3. sæti á lista VG í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None