Gjaldfrjáls skóli

Páll Valur Björnsson
Auglýsing

Í vik­unni lagði ég, ásamt fleiri þing­mönn­um, til að grunn­skóla­lögum verði breytt þannig að ákvæði um að opin­berum aðilum sé „ekki skylt að leggja nem­endum til gögn til per­sónu­legra nota, svo sem rit­föng og papp­ír“ verði fellt nið­ur. 

Nú er það svo að við Íslend­ingar höfum fest í lög Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna en þessi samn­ingur mark­aði mikil tíma­mót í bar­átt­unni fyrir rétt­indum barna. 

Barna­sátt­mál­inn leggur m.a. þær skyldur á stjórn­völd að grípa til aðgerða til að tryggja vel­ferð barna, m.a. á sviði mennta­mála og í 28 gr. samn­ings­ins segir að börn eiga rétt á grunn­menntun án end­ur­gjalds. 

Auglýsing

Í skýrslu Unicef um stöðu barna á Íslandi sem birt var í febr­úar síð­ast­liðnum kom fram að hlut­fall þeirra barna sem líða skort á Íslandi hefur rúm­lega tvö­fald­ast frá árinu 2009. Gera má ráð fyrir að rúm­lega 6.000 börn líði efn­is­legan skort hér á landi og af þeim þola tæp­lega 1.600 börn veru­legan skort. Hlut­fall barna sem líða veru­legan skort hefur þre­fald­ast frá árinu 2009 og er nú 2,4%.

Á bak við allar þessar tölur eru börn af holdi og blóði, með til­finn­ing­ar, vænt­ingar og metnað og löngun til að fá tæki­færi í líf­inu og verða ham­ingju­samt fólk. 

Er það ásætt­an­legt í vel­meg­un­ar­sam­fé­lag­inu okkar að meira en 6.000 börn skuli lifa við skort á efn­is­legum gæðum og þola alvar­lega mis­mun­un? 

Nei, að sjálf­sögðu ekki.

Það er okkur til skammar að hér á landi skuli vera börn sem fara ekki aðeins á mis við tæki­færi sem félagar þeirra fá og finnst sjálf­sögð til að stunda félags­líf og íþrótt­ir, læra á hljóð­færi, fara í ferða­lög, þroskast og njóta lífs­ins, heldur börn sem vegna fátæktar fá ekki við­un­andi nær­ingu, búa í vondu og óör­uggu hús­næði og klæð­ast lélegum föt­u­m. 

Og það er aug­ljóst að þessi börn hafa ekki sömu tæki­færi til þess að kaupa sér þau náms­gögn sem þeim eru nauð­syn­leg til þess að geta stundað skól­ann af reisn, eins og önnur börn.

Þess vegna er svo mik­il­vægt að grunn­skóla­lögum verði breytt þannig að tryggt verði börn sem búa við bágan efna­hag fái örugg­lega öll þau náms­gögn sem þau þurfa. Ann­ars er aug­ljós­lega mikil hætta á að þau fái ekki sömu tæki­færi til náms og önnur börn og við­horf þeirra til skól­ans verði nei­kvæð. 

Ég er sann­færður um að íslenska þjóðin er ein­huga um að reyna að koma í veg fyrir það og vill að það verði tryggt með lög­um.  

Höf­undur er þing­maður Bjartrar fram­tíð­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None