Íslenskir ráðherrar kunna ekki að segja af sér

ingsetning-hausti-2015_21254474436_o.jpg
Auglýsing

Í máli Eyglóar Harð­ar­dóttur opin­ber­ast tví­þættur vandi íslenskra rík­is­stjórn­a. Rík­is­stjórnin er fjöl­skipað stjórn­vald sem merkir í raun að for­sæt­is­ráð­herra er ein­ungis verk­stjóri rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Hann hefur því vænt­an­lega vald yfir ráð­herrum úr eigin þing­flokki en getur ekki sagt öðrum fyrir verk­um. Þetta kom glögg­lega í ljós þegar Öryrkja­banda­lag Íslands og Lands­sam­tökin Þroska­hjálp háðu miklar deilur við félags­mála­ráð­herra fyrir rúmum ald­ar­fjórð­ungi, en þá sat Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir á þeim stóli. Leikar fóru svo að banda­lagið og þroska­hjálp buðu Stein­grími Her­manns­syni í hollan hádeg­is­verð og fengu hann til að bera klæði á vopn­in. Honum tókst það svo vel að síðan gekk vart hníf­ur­inn á milli hags­muna­sam­tak­anna og ráð­herr­ans. Rök und­ir­rit­aðs í orð­ræð­unum við Stein­grím voru þau að hann væri verk­stjóri rík­is­stjórn­ar­innar og yrði að skakka leik­inn þegar einn ráð­herr­ann sýndi af sér meiri ófyr­ir­leitni en ásætt­an­leg væri.

Nú er málum þannig háttað að for­sæt­is­ráð­herra er úr hópi fram­sókn­ar­manna en Eygló er fram­sókn­ar­maður og því á hans ábyrgð. Ólík­legt verður að telja að Sig­urður Ingi vilji rugga bátnum með því að láta vísa Eygló úr rík­is­stjórn­inni.

Þá er á hitt að líta að Eygló virð­ist eini ráð­herra fram­sókn­ar­manna sem studdi ekki áætlun þá sem leiddi til hjá­setu hennar og því hlýtur hún að hafa ein­angr­ast nokkuð í rík­is­stjórn­inni og jafn­vel í þing­lokkn­um. Hún bregst við með því að sitja sem fast­ast og heldur að hún geri eitt­hvert gagn með því.

Auglýsing

Eygló virð­ist skorta burði til þess að sýna af sér það sið­ferð­is­þrek að segja af sér. Hún er greini­lega ósátt við nið­ur­stöðu þá sem aðrir ráð­herra sam­þykktu og snertir hennar mála­flokk. Í öðrum lýð­ræð­is­ríkjum en Íslandi segir slíkur ráð­herra af sér og reynir síðan að höfða til stuðn­ings­manna sinna í næstu kosn­ing­um.

Það er leitt að svona sé komið fyrir jafn­vænni stjórn­mála­konu og Eygló. Hún hefur hingað til viljað vel og verið skyn­söm. En þarna ætlar hún fram úr sjálfri sér.

Eygló, sýndu hug­rekki, segðu af þér og veldu þér annan vet­vang til umsvifa.



Grein­ar­höf­undur var for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands 1986-1993 og í Fram­sókn­ar­flokknum 1981-1998 þegar hann sagði sig úr flokknum og fór í póli­tískt þrifa­bað.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None