Kjarninn varð þriggja ára í gær, 22. ágúst, en þann dag árið 2013 hófst fréttaþjónusta undir nafni Kjarnans. Frá þeim tíma hefur mikið vatn runnið til sjávar, og Kjarninn eflst og dafnað.
Við höfum skapað okkur mikilvægan sess í samfélagsumræðunni á Íslandi, og hlotið viðurkenningar fyrir vandaðan og afhjúpandi fréttaflutning.
Við þökkum lesendum, áhorfendum og hlustendum samfylgdina, og bendum fólki sérstaklega á Kjarnasamfélagið.
Auglýsing
Á næstunni mun Kjarninn styrkja þjónustuna enn frekar, og hvetjum við ykkur til að fylgjast með því. Til hamingju með tímamótin og takk fyrir ánægjulega og mikilvæga samfylgd!