Kaffihúsableyður og menningarsnauð svín

Inga Björk Bjarnadóttir
Auglýsing

Mikið hefur borið á því að íbúum lands­byggð­ar­innar og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sé stillt upp sem tveimur pólum og fleyg­ur­inn virðst sífellt rista dýpra. Ann­ars vegar höfum við 101 aum­ingj­ana með latte-inn sinn sem eyða helg­unum á lista­söfnum og hafa aldrei migið í saltan sjó. Hins vegar er það upp­á­hell­ingar svolgrandi lands­byggð­ar­lýð­ur­inn sem borðar kjöt­búð­ing á mánu­dögum og hefur ekk­ert skyn­bragð á listir og menn­ingu. Þannig er gefið til kynna að menn­ing og listir eigi ekki erindi á lands­byggð­inni, en er það til­fellið?

Borg­ar­byggð, heima­bær minn, er gott dæmi um að menn­ing getur vel blómstrað úti á landi. Það sjáum við það til dæmis í þeim fjöl­mörgu kórum og leik­fé­lögum sem starf­rækt eru í sveit­ar­fé­lag­inu, í frum­kvöðla­setr­inu Hug­heim­um, söfnum í sveit­ar­fé­lag­inu, í Vit­brigðum – sam­tökum fólks í skap­andi greinum á Vest­ur­landi og svo var lista­há­tíðin Plan-B haldin í fyrsta sinn í Borg­ar­nesi á þessu ári sem und­ir­rituð kom að því að skipu­leggja.

Það hefur marg­sýnt sig að skap­andi ein­stak­lingar geta breytt hrör­leg­ustu hverfum í blóm­leg svæði sem eru iðandi af mann­lífi og sköp­un­ar­krafti. Þetta hafa borg­ar­yf­ir­völd um allan heim verið að átta sig á og veitt lista­mönnum vinnu­að­stöðu á svæðum sem þarfn­ast and­lits­lyft­ing­ar. Hefur þetta verið gert, t.d. í Reykja­vík, með verk­efn­inu Torg í bið­stöðu, þar sem skap­andi borg­arar taka að sér að hlúa að van­nýttum svæðum tíma­bund­ið. Seyð­is­fjörður er annað dæmi um hvernig bær út á landi hefur tekið stakka­skiptum með frum­kvæði lista­manna og íbú­a. Færum okkur út fyrir kass­ann og verum opin fyrir nýjum hug­mynd­um!

Auglýsing

Það er  nauð­syn­legt að styðja vel við bak heima­manna sem vilja leggja sitt af mörkum til að bæta og lífga upp á heima­byggð­irnar sín­ar. Við eigum mik­inn auð í skap­andi og dug­miklu fólki og með auknum stuðn­ingi og betri þjón­ustu blómstrar menn­ing og nýsköpun á lands­byggð­inn­i. 

Höf­undur er meist­ara­nemi í list­fræði og fram­bjóð­andi í flokksvali Sam­fylk­ing­ar­innar í NV-­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None