Landsbyggðarfólk og Tortóla

Auglýsing

Þegar SÍS var og hét, einkum hin síð­ari ár, þegar sukk fór úr bönd­um, var engin leið að styðja fram­sókn­ar­menn. Hrun varð á þeirri stofnun eins og hús­bóndi minn Andrés Jóns­son í Deild­ar­tungu hafði rauna löngum spáð en vit­grannir gert lítið úr. Í bók Sveins Skorra Hösk­ulds­son­ar‚ Svip­þingi, kemur hins vegar glögg­lega fram hví­líku grettistaki Sam­vinnu­hreyf­ingin og fram­sókn­ar­menn lyftu á fyrri hluta tutt­ug­ustu ald­ar.

Nú er svo komið að verka­lýðs­hreyf­ing er mátt­vana á Íslandi og póli­tísk for­usta af hálfu verka­lýðs­sinna er dauð. Það er í raun helsta skýrig á upp­gufun Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, auk almennrar van­þekk­ingar á efna­hags­málum og skiln­ings­leysis á eigin afglöp­um. Þetta mun bitna á hinum efna­minni en einkum og sér­ílagi á fólki á Lands­bygð­inni, og það þarf að skýra.

Nú er fjöldi búa kom­inn niður undir 2.000 úr ríf­lega 6.000 um 1990. Þessi fækkun á sér margar skýr­ing­ar, en fram­leiðslan hefur að mestu haldið sér í magni og gæðum vegna tækni­væð­ingar og hag­ræð­ing­ar. Sumir halda því fram að vondar erlendar vörur myndu drepa land­bún­að­inn og um síðir Íslend­inga, ef slakað væri á inn­flutn­ings­höft­um. Án þess að ég vilji hafna þeim rökum með öllu, þá er það mesta furða að menn skuli iðu­lega kom­ast heim frá útlöndum lif­andi. Þegar búum hefur fækkað svo stór­lega er það ekki ofverkið okkar að vernda það sem eftir er af búsetu í land­inu til sveita með styrkj­um, en ósk­andi væri að þeir styrir væru ekki tengdir fram­leiðslu­magni.

Auglýsing

Sú hætta sem steðjar að fólki á Lands­byggð­inni þegar stjórnum hluta­fé­laga er falin for­sjá í byggða­málum blasir við. Hluta­fé­laga­formið er að mörgu leiti eitt ólýð­ræð­is­leg­asta stjórn­ar­form sem til er og er þá Stalín­ism­inn ekki und­an­skil­inn. Þegar lífs­björgin hefur verið afhent hluta­fé­lags­stjórn­inni, hvort sem það er úr höndum keyptra þing­manna eða á upp­boði, þá hættir hið opin­bera að ráða för, 50.000 til 60.000 lands­manna eru ofur­seldir hinu stalíníska hluta­fé­lagi. Land­bún­aður er ekki vandi hjá þeim ham­förum sem bíða okkar í sjáv­ar­þorp­un­um.

Þá ger­ist það, að for­sæt­is­ráð­herr­ann fer með fé sitt til aflands. Þetta end­ur­speglar hætt­una enn meir. Lands­byggð­ar­fólk hrekst land­horna milli eftir duttl­ungum hluta­fé­laga­stjórn­ar­innar og arð­ur­inn af vinnu allra lands­manna kann að vera fluttur til aflands.

Í þessum skiln­ingi erum við öll lands­byggð­ar­fólk, óvinur okkar er aflands­mað­ur­inn.

Höf­und­ur­inn er lektor í hag­fræði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None