Okur eða ofris

Guðmundur Ólafsson, lektor í hagfræði, skrifar um hina skelfilegu ókosti gengisfellinga þegar þeim er beitt æ ofan í æ.

Auglýsing

Hall­grímur Guð­munds­son hefur haft fyrir því að rýna í afbók­anir og kemst að því að þær eru 1500 af þeim tveim millj­ónum pant­ana sem vænt­an­legar eru. Þetta eru því 0,075% og getur varla talist þjóðar vá eða til­efni til­ stór­karla­legra aðgerða á borð við geng­is­fell­ing­ar, sem leiða til launa­lækk­ana allra í land­inu.

Aftur á móti kann að vera vandi á hönd­um. Síð­ast­liðið sumar fór ég austur á Horna­fjörð­ur­ og þar sem félagi minn er mik­ill íslensku­maður og bók­menntaunn­andi var ekki hjá því kom­ist að stoppa á Þór­bergs­setri. Þar var vist­legt og veggir skreyttir með Esper­anto-klaus­um. Eng­inn í þjón­ustu­liði var þó mæltur á Íslensku og tékk­nesk stúlka afgreiddi okkur og vildum við fá ódýr­ustu mál­tíð á mat­seðl­in­um. Það var þá salt­fiskur og kost­aði 4.200 krónur mál­tíðin fyrir einn, en á sama tíma fékkst salt­fiskur á 1.600 krónur á ­Um­ferð­ar­mið­stöð. Gerðum við það sem Þór­bergur hefði gert, fór­um.

Auglýsing

Á Horna­firði fréttum við af hót­eli sem seldi kjöt­súpu­disk á 5.000 krón­ur þegar hann kost­aði 1.400 krón­ur í Borg­ar­nesi. Í dag, tæpu ári síðar kostar vatns­flaska 489 krón­ur í Olís á Sel­fossi þegar hún kostar 128 krónur í Bónus skammt frá og er fram­leiðslu­kostn­aður vart yfir 50 kr. Vinur minn fékk tvo erlenda starfs­menn í sól­ar­hring til lands­ins og tókst með eft­ir­gangs­munum að næla í tveggja manna her­bergi, en svo lítið var það að varla var hægt að smokra sér milli rúmanna, nán­ast glugga­laust. Nóttin kost­aði 49.000 krón­ur í þessum tveggja manna fanga­klefa. Svo heyrir maður geggj­aðri sögur á hverjum degi, en það sem hér er sagt hef ég sann­reynt.

Á sama tíma og þetta ger­ist hefur neyslu­verðs­vísi­tala lítið sem ekk­ert breyst. Á móti þessum sjúk­legu tölum vega lækk­anir á öðrum, svo sem  bílum og elds­neyti, þar sem US$ hefur farið úr 128 krón­ur ­niður í 110 krón­ur, hann hefur lækkað um sem nemur 14%-15%. Og svo tala menn um rosa­lega styrk­ingu krón­unn­ar. Auð­vitað hefur krónan rokkað eitt­hvað upp en það skýrir ekki dæmin sem áður eru rak­in. Þau bera vott um sjúk­legt okur en ekki ofris aumrar mynt­ar.

Auð­vitað kalla gjafa­kvóta­greifar og ferða­okrarar á geng­is­fell­ingu, vilja að allir lands­menn styðji ruglið með launa­lækk­un. Til eru menn sem líta á geng­is­fell­ingar sem kost. Ókost­irnir við það meðal eru hins vegar skelfi­legir þegar því er beitt æ ofan í æ í 70 ár. Vondum rekstri er haldið gang­andi von úr viti, sem ætti að taka úr höndum lið­leskja og fá rekst­ur­inn dug­andi fólki eftir gjald­þrot. Þetta skýrir hvers vegna þjóð með mikla lands­fram­leiðslu er með einna lök­ustu fram­leiðni á klukku­stund í sið­uðum löndum og þar með lágt tíma­kaup og vinnu­tíma svip­aðan og var fyrir 100 árum ann­ar­stað­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None