Hvað er tálmun á umgengni

Helga Dögg Sverrisdóttir segir að enginn ætti að líða andlegt ofbeldi á barni og telur að það stingi í stúf að löggjafinn leyfi það form ofbeldis. Það sé allavega birtingarmynd foreldra sem hafa reynslu af tálmun.

Auglýsing

Aukin umræða um tálmun á umgengni hefur orðið til þess að margir spyrja hvað það sé. Aðrir hafa ekki heyrt orðið ,,tálm­un“ í tengslum við brot á umgengn­is­sam­ingi sem for­eldrar hafa gert með milli­göngu sýslu­manns­emb­ætta en það ger­ist þegar for­eldrar ná ekki sáttum um umgengn­i. Hindri for­eldri á ein­hvern hátt að lög­bund­inn úrskurður nái fram að ganga er það tálm­un.

Tálmun á umgengni er þegar lög­heim­il­is­for­eldrið kemur í veg fyr­ir, með ýmsum ráðum, að barn njóti ekki sam­vista við hitt for­eldr­ið. Birt­ing­ar­myndin er að lög­heim­il­is­for­eldrið lætur sig hverfa þegar sækja á barn­ið, þyk­ist ekki vera heima, flytur í annað sveit­ar­fé­lag þannig að barn eigi erf­ið­ara um vik að vera með hinu for­eldr­inu og flytur jafn­vel til útlanda. Allt of margir halda að tálmun sé þegar barnið fær ekki að vera hjá hinu for­eldr­inu, en svo er ekki. Komi lög­heim­il­is­for­eldrið í veg fyrir að barn njóti sam­vista við hitt for­eldrið, að hluta eða öllu leyti sam­kvæmt úrskurði, er um tálmun að ræða. 

Það er við­ur­kennt að tálmun sé ofbeldi. Tálmun er and­legt ofbeldi og um það eru sér­fræð­ingar sam­mála. Slíkt ofbeldi hefur áhrif á barn þegar til lengdar læt­ur. Fag­menn eru sam­mála um að oft­ast fylgi illt umtal um hitt for­eldrið með­  of­beld­in­u. Það er ekki lítið lagt á barn, notað sem vopn í bar­áttu full­orðna fólks­ins.

Auglýsing

Því miður fylgir oft ákveð­inn heila­þvottur á barni þegar tálmun á sér stað. Til að breiða yfir eig­in breysk­leika telur lög­heim­il­is­for­eldrið barni sínum trú um að hitt for­eldrið vilji ekki sjá það og það svert á allan hátt. Leik­ur­inn er gerður til að fá barn upp á móti hinu for­eldr­inu. Stundum verður barn svo litað af heila­þvott­inum að það tjáir óskir sínar gegn eigin vilja. Slíkur heila­þvottur er liður í bar­áttu full­orðna fólks­ins. Lög­heim­il­is­for­eldrið hundsar alfarið vel­ferð og rétt barns­ins, er of upp­tekið í eigin hags­muna­bar­áttu. Vel­ferð og réttur barns­ins gleym­ist. Barn er gott vopn á því leikur eng­inn vafi en hefur slæmar afleið­ingar fyrir það þegar fram í sæk­ir. Slíkt má sjá í leik- grunn- og fram­halds­skóla svo og skóla lífs­ins. Afleið­ing tálm­un­ar.

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði rétti­lega í eld­hús­dags­um­ræð­unni að börn við ákveð­inn aldur finna til sam­kenndar og eru með­virk. Þessi orð eiga líka við um börn sem búa við tálm­um. Vona að hann hafi það hug­fast og leggi sín lóð á vog­ar­skál­arnar til að koma þessum börnum til hjálp­ar.

Eng­inn ætti að líða and­legt ofbeldi á barni. Það stingur vissu­lega í stúf að lög­gjaf­inn leyfi þetta form ofbeld­is, alla­vega er það birt­ing­ar­mynd for­eldra sem hafa reynslu af tálm­un. Smá von kvikn­aði í brjósti þeirra sem bera hag barna í slíkum aðstæðum fyrir brjósti að ,,tálm­un­ar­frum­varp­ið“ væri spor í rétta átt að gera tálmun refsi­verða eins og annað ofbeldi. Að losa barn undan ánauð. En þing­menn VG og Pírata hafa gefið skýrt til kynna að ekki eigi að hugsa um hag barna heldur mæðra sem beita þessu ofbeldi eins og þeir sögðu sjálf­ir. Og nú má beita börn and­legu ofbeldi í skjóli femínista, eins og þing­mað­ur VG sagði en hún sem femínisti getur ekki fall­ist á frum­varpið því það kemur ofbeld­is­for­eldr­inu illa. Nú hefur umboðs­maður barna stokkið á þann vagn og Félags­ráð­gjafa­fé­lag Íslands. Báðir aðilar virð­ast þekkja lítið til hvernig málum er háttað hjá Sýslu­manns­emb­ætt­unum og aðhyll­ast mæðra­veld­ið. Smán á íslensku sam­fé­lagi að mínu mat­i. 

Engin virk úrræði eru til sem barna­vernd­ar­nefndir eða annað stjórn­vald getur gripið til þegar tálmun á sér stað, því ber að fagna frum­varpi Brynjars Níels­sonar o.fl. Það er von mín að frum­varpið fari í gegnum þingið og þing­menn sjái sóma sinn í að standa vörð um rétt barna, rétt­inn að umgang­ast báða for­eldra sína.  

Ég skora á þing­menn að veita frum­varp­inu braut­ar­gengi þannig að hægt verði að koma í veg fyrir ofbeldi barna sem líða fyrir tálmun á umgengni. Börn vilja vera hjá báðum for­eldrum sín­um, það á ekki að nota þau sem vopn og lög­gjaf­inn að gera allt til að hindra það.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar