Blaðurspói og bullustelkur

Indriði H. Þorláksson skrifar um delluskrif undir dulnefni.

Auglýsing

Oft er reynt að ljá röngum stað­hæf­ingum trú­verð­ug­leika með því að bera þær fram undir virtu nafni. Dæmi þess má finna í dálki í Við­skipta­blað­inu 19. sept. sl. þar sem reynt er að koma höggi á for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar með fölskum stað­hæf­ing­um, sem settar eru fram undir dul­nefni.

For­manni Sam­fylk­ing­ar­innar er eignað það að vilja „gefa öldruðum tæki­færi til að vinna meira til að eiga fyrir auð­legð­ar­skatt­inum enda leggst hann harð­ast á þá." Þessu fylgir sú fals­frétt að „Síð­ast þegar auð­legð­ar­skattur var lagður á, gjald­árin 2010 til 2014, bitn­aði hann einna harð­ast á tekju­lágum eldri borg­urum sem bjuggu, eftir langa starfsævi í skuld­litlu hús­næði." Þessi stað­hæf­ing er sótt í bréf Sjálf­stæð­is­flokks­ins fáum dögum fyrir kosn­ingar 2013, sem helst er frægt fyrir það að fögur lof­orð þess voru öll svikin nema það eitt að veita meiru fé þangað sem mest var fyr­ir.

Ég ætla Loga Ein­ars­son full­færan að verj­ast skotum úr laun­sátri en nefni þetta hér vegna þess hversu aug­ljóst fleipur það er. Lág­marks könnun á fyr­ir­liggj­andi stað­reyndum t.d. á vef RSK og greina í Tíund hefði leitt í ljós að fjarri öllum sanni er að auð­legð­ar­skatt­ur­inn hafi lagst harð­ast á tekju­lága eldri horg­ara. Ein­hver rök­hugsun hefði einnig bjargað pistla­höf­undi frá þessu bulli.

Auglýsing

Álagn­ing á árinu 2014 sýnir að þau 10% hjóna, sem hæstar tekjur höfðu, greiddu 75% af öllum auð­legð­ar­skatti, sem lagður var á hjón, og reyndar greiddu 2% tekju­hæstu hjónin 62% hans. Tekju­hærri helm­ingur hjóna greiddi yfir 88% af skatt­in­um. Um 7,5% skatts­ins var lagður á þau 30% hjóna sem lægstar tekjur höfðu. Nánar um það hér á eft­ir.

Sú stað­hæf­ing að skatt­ur­inn hafi helst lagst á „tekju­lága eldri borg­ara sem bjuggu eftir langa starfsævi í skuld­litlu eigin hús­næði” stenst ekki rök­lega hugs­un. Frí­eigna­mark auð­legð­ar­skatts fyrir hjón var 120 millj­ónir króna. Fast­eigna­mat á íbúð­ar­hús­næði, það verð­mæti sem skatt­ur­inn mið­ast við, var yfir­leitt á bil­inu 200 - 300 þús. kr. á fer­metra í á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á árinu 2013. Til þess að íbúð­ar­eign ein næði því að verða til­efni til auð­legð­ar­skatts þurfti sú íbúð þvi að vera 400 til 600 fer­metr­ar. Skyldu margir „tekju­lágir eldri borg­arar” búa við þann húsa­kost?

Dæmi finn­ast um hjón í neðri hluta tekju­ska­l­ans skv. fram­tölum sem greiddu auð­legð­ar­skatt. Að því þarf þó að huga að sá tekjur skv. fram­tali sýna ekki alltaf raun­veru­legar tekjur fram­telj­and­ans.  Launa­tekj­ur, líf­eyr­ir, vaxta­tekjur og annað sem venju­legur skatt­borg­ari hefur úr að moða er sam­visku­sam­lega tíund­að. Það á hins vegar ekki við um marg­vís­legar eigna­tekjur og eigna­aukn­ingu í ýmsu formi. Nefna má að þeir sem oft eru nefndir “at­hafna­menn” eða “fjár­fest­ar” hylja tíðum eignir sínar og ávöxtun þeirra í einka­hluta­fé­lagi. Félagið greiðir þeim sult­ar­laun - ef þá nokkur - sem tryggir þeim lend­ingu í neðsta hluta tekju­skatts­ska­l­ans (og eftir atvikum barna­bæt­ur, vaxta­bætur og elli­líf­eyr­i). Lík­legra er að finna tekju­lága” auð­menn en eldri borg­ara í hópi þeirra sem greiddu auð­legð­ar­skatt.

Hrafn­arir fornu, Hug­inn og Mun­inn, eru ein­kenn­is­fuglar Mennta­skól­ans á Akur­eyri, nafn­gjafar skóla­fé­lags­ins og skóla­blaðs­ins. Flugu þeir um heim allan og upp­lýstu Óðinn um hvað­eina, sem gerð­ist. Mun Óðinn trauðla hafa sætt sig við bull og blaður úr goggi þeirra. Sem fyrrum nem­andi MA mis­býður mér notkun Við­skipta­blaðs­ins á nöfnum þess­ara heið­urs­fugla fyrir felu­skrif og fals­fréttir og leyfi mér að benda blað­inu á að nota í stað­inn fugla­nöfn við hæfi svo sem blað­ur­spói og bullu­stelk­ur.

PS. Sján­lega ofbýður fleirum en mér með­ferð fugla þess­ara á stað­reynd­um, sbr. grein Gam­al­í­els Sveins­sonar í Við­skipta­blað­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar