Það var eftirminnileg umræðan um uppreist æru sem átti sér stað í bumbuboltanum fyrir um mánuði síðan. Hitinn og orkan sem við settum í umræðuna var langtum meiri en orkan sem fór í að sparka boltanum. Við vorum á einu máli um að nú væri nóg komið af leyndarhyggjunni og sérhagsmunagæslunni sem lengi hefur umlukið íslensk stjórnmál. En skipti það nokkru máli hvað okkur fannst?
Sama kvöld féll ríkisstjórnin. Björt framtíð tók ákvörðun um að slíta stjórnarsamstarfi og byggði þá ákvörðun á kröfu almennings um heiðarleika og vönduð vinnubrögð. Björt framtíð stóð við gildin sín og hafði þor til að stíga fram og #hafahátt. Þau hlustuðu og tóku afstöðu með þjóðinni. Ég fann fyrir létti og bjartsýni. Ég fann líka fyrir virðingu í minn garð af hálfu stjórnmálaafls, eitthvað sem ég hef ekki fundið áður.
Þessi ákvörðun Bjartar framtíðar um stjórnarslit eru skýrt dæmi um þær breytingar sem eru að eiga sér stað í íslenskum stjórnmálum. Nýtt og heilbrigðara samtal á milli Alþingis og landsmanna er farið að taka á sig mynd. Pólitíkin er að breytast og ég vil taka þátt í þeim breytingum. Ég vil vera hluti af stjórnmálaafli sem:
- Raunverulega áttar sig á því að þau eru fulltrúar þjóðar en ekki foringjar hennar.
- Þorir að hlusta og taka erfið og þung skref í átt að breytingum.
- Mun leggja samning við ESB fyrir þjóðina í stað þess að hjúpa það ferli með leynd.
- Lofar ekki 100 milljörðum í allskonar til að kaupa sér atkvæði.
- Skilur að sterkt menntakerfi er lykillinn að þátttöku í fjórðu iðnbyltingunni.
- Skilur að mannréttindi eru fyrir alla, ekki bara suma, og að þau eru grunnurinn að heilbrigðu samfélagi.
- Hafnar leyndarhyggju og sérhagsmunagæslu.
- Virðir náttúruna og áttar sig á að hún er það verðmætasta sem við eigum.
Með þessum áherslum, og fjölmörgum öðrum, er Björt framtíð öflugur þátttakandi í því að breyta íslenskum stjórnmálum. Við viljum vera leiðandi afl sem talar fyrir heiðarleika og gagnsæi og færir Alþingi nær þjóðinni. Breytingarnar eru nú þegar hafnar og ég vona að þú kjósir bjarta framtíð með okkur.
Höfundur er framkvæmdastjóri og frambjóðandi Bjartrar framtíðar í 2. sæti Reykjavíkurkjördæmi suður.