Áfram Katrín!

Þrettán konur segja að Vinstri hreyfingin grænt framboð, með Katrínu Jakobsdóttur í fararbroddi, eigi fullt erindi í ríkisstjórn og eigi ekki að óttast samstarf við nokkurn flokk.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna og einn öfl­ug­asti stjórn­mála­maður lands­ins fyrr og síð­ar, sýnir þessa dag­ana fádæma kjark. Þrátt fyrir tals­verðan mót­byr stendur hún full sjálfs­trausts í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum við tvær öfl­ugar valda­blokkir í íslensku sam­fé­lagi, Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk. Katrín sýnir með ein­beitni sinni og áræðni aðdá­un­ar­vert for­dæmi í hörðum heimi karllægra stjórn­mála.

Það er sann­fær­ing okkar að Katrín muni sjá til þess að bar­áttu­mál og hug­sjónir VG fái gott braut­ar­gengi. Hún hefur sýnt það þau 10 ár sem hún hefur starfað á Alþingi að hún er í stjórn­málum af heil­indum og ástríðu.

Nið­ur­stöður nýlið­inna kosn­inga gáfu hvorki hreint stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð til vinstri né hægri. Yfir­stand­andi við­ræður eru sögu­leg til­raun til að sætta sjón­ar­mið í sam­fé­lag­inu og við treystum Katrínu og öðrum úr for­ystu VG til að leiða þessar við­ræður til far­sælla lykta. Við treystum því að okkar fólk fari ekki af stað í sam­starf við nokkurn flokk án þess að áherslur VG í vel­ferð­ar-, jafn­rétt­is- og umhverf­is­málum verði settar á odd­inn. Ef vel gengur við samn­inga­borðið þá treystum við þeim jafn­framt til þess að vinna ötul­lega að fram­gangi þess­ara mála í stjórn­ar­sam­starfi.

Auglýsing

Það þarf grettistak í mörgum stórum mála­flokkum og það er verk­efni sem þolir enga bið. Meiri­hluti þjóð­ar­inn­ar, óháð því hvar póli­tískt hjarta slær, er ein­huga um að gera þurfi átak í heil­brigð­is­mál­um, mennta­mál­um, vel­ferð­ar­málum og sam­göngu­mál­um. Okkur þætti það miður ef for­ysta VG reyndi ekki til hlítar að svara kalli kjós­enda og taka sér stöðu sem lyk­il­að­ili í nýrri rík­is­stjórn til að vinna að þessu stóra verk­efni með hug­sjónir félags­hyggj­unnar að leið­ar­ljósi. Vinstri hreyf­ingin grænt fram­boð, með Katrínu Jak­obs­dóttur í far­ar­broddi, á fullt erindi í rík­is­stjórn og á ekki að ótt­ast sam­starf við nokkurn flokk.

  • Berg­lind Häsler, bóndi í Berufirði.
  • Berg­lind Rós Magn­ús­dótt­ir, dós­ent við Háskóla Íslands, Reykja­vík.
  • Bryn­dís Hrönn Ragn­ars­dótt­ir, mynd­list­ar­mað­ur, Reykja­vík.
  • Guðný Hildur Magn­ús­dótt­ir, félags­mála­stjóri í Bol­ung­ar­vík og Súða­vík.
  • Gunn­hildur Hauks­dótt­ir, mynd­list­ar­mað­ur, Reykja­vík.
  • Halla Sig­ríður Stein­ólfs­dótt­ir, líf­rænn bóndi og sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi í Dala­byggð
  • Ingi­björg Þórð­ar­dótt­ir, fram­halds­skóla­kenn­ari í Nes­kaup­stað.
  • Kristín Þóra Kjart­ans­dótt­ir, fram­kvæmd­ar­stjóri Flóru, Akur­eyri.
  • Sif Jóhann­es­dótt­ir, sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi í Norð­ur­þingi.
  • Sig­ríður Gísla­dótt­ir, dýra­læknir á Ísa­firði.
  • Sóley Björk Stef­áns­dótt­ir, bæj­ar­full­trúi á Akur­eyri.
  • Þórey Bjarna­dótt­ir, bóndi, Kálfa­felli, Upp­hús­um.
  • Þór­unn Hrund Óla­dótt­ir, kenn­ari og bæj­ar­full­trúi á Seyð­is­firði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar