Menntaborgin Reykjavík - Aðgerðir skila árangri

Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður skóla- og fristundarsviðs Reykjavíkur, skrifar um menntamál.

Auglýsing

Skóla- og frí­stunda­starf er ein­hver mik­il­væg­asti þátt­ur­inn í grunn­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar og þar er unnið afar metn­að­ar­fullt starf. Sú þjón­usta sem börn­unum í borg­inni er veitt væri ekki fram­kvæm­an­leg án þess stóra hóps afburða starfs­fólks sem vinnur á leik­skól­um, grunn­skólum og á frí­stunda­mið­stöðvum úti um alla borg. Mönnun í þau störf hefur á stundum verið vanda­söm, ekki síst á tímum eins og nú þegar mikil þensla er í þjóð­ar­bú­skapnum og atvinnu­leysi í sögu­legu lág­marki.  Til að bregð­ast við mann­eklu á leik­skól­um, grunn­skólum og frí­stunda­heim­ilum borg­ar­innar brást skóla- og frí­stunda­svið við af mik­illi festu á síð­ast­liðnu ári og beitti öllum til­tækum ráðum til að ráð­ast að vand­an­um. Sem betur fer hefur veru­legur árangur náðst og er nú svo komið að staðan er mark­tækt betri en á sama tíma í fyrra.

Mikil vinna skilar sér

Þann 22. jan­úar vant­aði að ráða í 28 stöðu­gildi á leik­skólum borg­ar­innar eða innan við hálft stöðu­gildi á hvern leik­skóla að jafn­aði . Nú er svo komið að meira en 80% leik­skóla eru annað hvort full­mann­aðir eða vantar innan við 2 starfs­menn.  Það er veru­leg breyt­ing til batn­aðar frá haust­mán­uðum en í byrjun ágúst vant­aði starfs­fólk í rúm­lega 130 stöðu­gildi. Þennan árangur má þakka mik­illi vinnu stjórn­enda, mannauðs­deildar skóla- og frí­stunda­sviðs og þeim marg­vís­legu aðgerðum sem við réð­umst í síð­ast­liðið haust til að bregð­ast við mann­eklu og auknu álagi á starfs­fólk leik­skól­anna.

Sömu sögu er að segja af mönnun frí­stunda­heim­ila en þar vantar nú starfs­fólk í 27 stöðu­gildi, borið saman við 113 stöðu­gildi um miðjan ágúst. Þá vantar aðeins að ráða starfs­fólk í 11 stöðu­gildi í grunn­skólum borg­ar­inn­ar, 0,6 pró­sent allra stöðu­gilda í skól­unum en sam­bæri­leg tala var 25 stöðu­gildi seinni­part­inn í ágúst. Áfram verður unnið af ein­urð að því að full­manna allar þessar mik­il­vægu stofn­an­ir.

Auglýsing

Aukið fjár­magn til skól­anna

Þessi árangur hefur náðst með sam­stilltu átaki starfs­manna skóla- og frí­stunda­sviðs þar sem lögð hefur verið áhersla á það ann­ars vegar að bæta starfs­um­hverfi í grunn- og leik­skól­um, sem og frí­stunda­heim­il­um. Þannig hafa ýmsar til­lögur starfs­hóps um bætt vinnu­um­hverfi grunn­skóla­kenn­ara þegar verið inn­leidd­ar, en starfs­hóp­ur­inn skil­aði af sér í des­em­ber síð­ast­liðn­um. Þar á meðal má nefna aukið fjár­magn til verk­efna­stjórn­ar, aukið fjár­magn til sér­kennslu og einnig vegna stuðn­ings­full­trúa í 1. bekkj­um, ný stöðu­gildi kennslu­ráð­gjafa og móð­ur­máls­kenn­ara sett á fót, aukin fjár­veit­ing til túlka­þjón­ustu og til kennslu íslensku sem ann­ars tungu­máls, fjár­magni hefur verið veitt til við­halds skóla­bygg­inga. 

Aðeins vantar að manna hálft stöðu­gildi að jafn­aði í leik­skóla borg­ar­inn­ar. Það er gríð­ar­leg breyt­ing til batn­aðar frá síð­asta hausti.

Þá er verið að leggja loka­hönd á nýja mennta­stefnu til 2030, sem mun skerpa á því hvaða þætti þurfi sér­stak­lega að efla til að stuðla að alhliða gæða­menntun barn­anna í borg­inni, sem nýt­ist þeim í síbreyti­legri ver­öld 21. ald­ar­inn­ar.  Loks má nefna að starfs­hópar um bætt vinnu­um­hverfi, bæði í leik­skólum og í frí­stunda­heim­il­um, eru að störfum og eiga báðir að skila af sér í næsta mán­uði. Þegar allt er talið hafa fjár­veit­ingar til mennta­mála í Reykja­vík­ur­borg auk­ist um fjórð­ung á kjör­tíma­bil­inu eða heila 9 millj­arða króna.

Nýjar leiðir sem virka

Að sama skapi var mikil vinna lögð í að finna nýjar og skil­virk­ari leiðir til að vekja athygli á þessum mik­il­vægu störf­um. Þannig var nýrri hönnun og nálgun beitt við aug­lýs­ingar skóla- og frí­stunda­sviðs, sem bæði voru settar fram á prenti en einnig leikn­ar. Leitað var aðstoðar birt­inga­ráð­gjafa við val á fjöl­miðlum og einnig samið við ráðn­inga­fyr­ir­tæki um sér­stakt átak við ráðn­ing­ar. Þá var leitað til fyrr­ver­andi starfs­manna á leik­skólum borg­ar­inn­ar, sam­starf hafið við Félag eldri borg­ara auk fjöl­margra ann­arra verk­efna sem skilað hafa þessum góða árangri. 

Byggjum upp mennta­borg­ina Reykja­vík

Grunn­skól­ar, leik­skólar og frí­stunda­mið­stöðvar borg­ar­innar eru öfl­ug­ar, fag­legar og ákaf­lega mik­il­vægar starfs­stöðvar sem gegna lyk­il­hlut­verki í upp­vexti barn­anna í borg­inni. Um þetta erum við sem myndum meiri­hluta borg­ar­stjórnar Reykja­víkur vel með­vit­uð. Við munum hlúa í enn frek­ari mæli að innra starfi þeirra og ytri aðbún­aði  og beita öllum ráðum til að tryggja fulla mönnun og bætt starfs­um­hverfi kenn­ara og ann­ars starfs­fólks, for­eldrum og einkum börnum borg­ar­innar til heilla.

Höf­undur er borg­ar­full­trúi og for­maður skóla- og frí­stunda­ráðs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar