Falskar fréttir

Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að umræða um þéttingu byggðar sé gegnsýrð af bulli og gervistaðreyndum.

Auglýsing

Umræðan um þétt­ingu byggðar er gegn­sýrð að bulli og gervi stað­reyndum sem er slengt fram af sterkum aðil­um. 

Ítrekað hefur því verið haldið fram að stór galli við þétt­ingu byggðar sé að hún gangi of hægt. Að það sé fljót­legar að byggja á óbyggðu landi. Þetta hefur verið sett fram sem rök gegn þétt­ingu og náð að dreifast ansi víða.

Stað­reyndin er samt sú að það gengur ekki bara jafn hratt að byggja á þétt­ing­ar­reitum og á óbyggðu landi – það gengur hrað­ar. Þetta sýnir grein­ing sem gerð var á íbúða­bygg­ingum á tíma­bil­inu 2013-2017. 

Auglýsing

Með­al­bygg­ing­ar­tími að fok­heldi á þétt­ing­ar­svæðum reynd­ist 1,6 ár en á bygg­ing­ar­svæðum í úthverfi 1,7 ár. Ekki reynd­ist munur á bygg­ing­ar­hraða þétt­ing­ar­verk­efna eftir því hvort þau voru austan eða vestan Elliða­áa. 

Í dag er unnið eftir stefnu sam­þykkts Aðal­skipu­lags Reykja­víkur sem miðar að því að þétta byggð og efla þannig hverfin og nýta inn­viði bet­ur. Þétt­ing­in ­dregur úr akstri og styttir vega­lengd­ir. Um 90% nýrra íbúða í Reykja­vík eru nú byggðar innan þétt­býl­is­marka og og því fagn­að­ar­efni að sjá það svart á hvítu að sú upp­bygg­ing er ekki bara góð til fram­tíðar heldur er hún raun­veru­lega líka sú skyndi­lausn sem kallað er eft­ir. 

Önnur full­yrð­ing er sú að lóða­skortur  standi í vegi fyrir upp­bygg­ingu og að upp­bygg­ing í Reykja­vík sé tak­mörk­uð. Hið rétta er að það eru 3.600 íbúðir eru á fram­kvæmda­stigi í Reykja­vík í dag. Til við­bótar eru 3.800 íbúðir með sam­þykkt deiliskipu­lag og til­búnar til upp­bygg­ing­ar. Auk þess eru 7.100 íbúðir í deiliskipu­lags­ferli. 

Fréttir um mis­heppn­aða þétt­ingu og hæga upp­bygg­ingu eru ein­fald­lega ekki á rökum reistar og bein­línis falskar en rétta fréttin er sú að aldrei hefur verið byggt jafn mikið og ákkúrat núna. 

Höf­undur er borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar