Eftirlits- og rannsóknarskylda stjórnvalda er skýr

Helga Vala Helgadóttir segir að það sé skylda að tryggja að stjórnkerfið virki og starfað sé eftir lögum og reglum. Það verði ráðherrar í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur bara að sætta sig við.

Auglýsing

Það er merki­leg lunda hjá stjórn­ar­liðum að kalla það póli­tískt skít­kast að spyrja þá eðli­legra spurn­inga um stór­mál sem ger­ast í íslenskri stjórn­sýslu. Á Alþingi í vik­unni spurði Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar einn þriggja leið­toga rík­is­stjórn­ar­inn­ar, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og núver­andi fjár­mála­ráð­herra ein­faldrar spurn­ingar og fékk yfir sig það svar að hann væri með póli­tískt skít­kast. 

Spurn­ingin var ein­föld. Vissi Bjarni Bene­dikts­son af því að verið væri að flytja her­gögn ýmist í gegnum íslenska loft­helgi eða með íslenskum flug­vél­um. Bjarni gat brugð­ist við spurn­ing­unni á tvo vegu. Ját­andi eða neit­andi. Vissi hann þetta eða vissi hann það ekki. Hann var for­sæt­is­ráð­herra þar til síðla árs 2017. Hann er fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins en ráð­herra þess flokks fór fyrir  sam­göngu­ráðu­neyti í síð­ustu og þar­síð­ustu rík­is­stjórn, en um er að ræða ráðu­neyti Sam­göngu­stofu sem veitir leyfi til her­gagna­flutn­inga íslenskra flug­fé­laga. Það er því full­kom­lega eðli­legt að spyrja hann að því hvað hann vissi um þessa flutn­inga sem áttu sér stað með sér­stakri und­an­þágu­heim­ild íslenskra stjórn­valda. Slíka und­an­þágu­heim­ild þurftu íslensk stjórn­völd að veita vegna þess að meg­in­reglan er að slíkur her­gagna­flutn­ingur sé með öllu óheim­ill. Ísland er her­laust land. Við höfum skyldum að gegna í alþjóða­sam­starfi og því hvílir skylda á íslenskum stjórn­völdum að hafa eft­ir­lit með hvaða und­an­þágu­heim­ildir er verið að veita gegn meg­in­reglum alþjóða­samn­inga sem við höfum full­gilt. Í því til­viki sem hér er um að ræða hefur Sam­göngu­ráð­herra fram­selt vald sitt til Sam­göngu­stofu sem afgreiddi leyfið án aðkomu ráð­herra fram í októ­ber sl þegar starfs­maður stofn­un­ar­innar ákvað að spyrja ráðu­neytið út í her­gagna­flutn­inga til Venes­ú­ela. Um var að ræða tára­gas sem flytja skyldi þangað og þá kveikn­uðu að því er virð­ist í fyrsta sinn, við­vör­un­ar­bjöllur sem gerði það að verkum að ákveðið var að bera þessa leyf­is­veit­ingu undir sam­göngu­ráðu­neyt­ið. Sam­göngu­ráðu­neytið leit­aði álits utan­rík­is­ráðu­neytis sem gaf nei­kvæða umsögn og því var leyfi til lend­ingar hér á landi með farm­inn ekki veitt. Höfðu þá her­gagna­flutn­ingar staðið yfir án afskipta ráð­herra amk. frá árinu 2008 og mögu­lega fyrr. 

Vert er að benda á að fjallað hefur verið um þessa flutn­inga í erlendum fjöl­miðl­um. Þrátt fyrir það hafi íslensk stjórn­völd ekk­ert gert til að rann­saka hvað átt hefur sér stað með þeirra leyfi. Íslenskir ráða­menn geta ekki skýlt sér á bak­við að þeir vissu ekk­ert af þessu. Stjórn­völd hafa rann­sókn­ar­skyldu. Þeir hafa eft­ir­lits­skyldu og það er óboð­legt að ráðu­neyti fylgist ekki með hvort farið sé á svig við alþjóð­legar skuld­bind­ingar Íslands með veit­ingum leyfa á und­an­þágu. Hver er staðan með aðra alþjóða­samn­inga? Telja íslenskir ráða­menn mögu­lega betra að spyrja ekki, svo hægt sé að skýla sér á bak­við það að þeir hafi bara ekk­ert vit­að? 

Auglýsing

Í þessu eins og öðru er svo ekki hægt að agn­ú­ast út í þá sem í dag gagn­rýna þessi vinnu­brögð og spyrja spurn­inga. Það er okkar skylda að tryggja að stjórn­kerfið virki og starfað sé eftir lögum og reglum og það verða ráð­herrar í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur bara að sætta sig við. 

Höf­undur er þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar