Grannir pony hestar og vöðvastæltir bardagamenn

Elva Björk Ágústsdóttir sálfræðikennari segir að þar sem jákvæð líkamsmynd sé mjög mikilvæg fyrir bætta líðan og heilsu barna sé nauðsynlegt að skoða betur tengsl þeirra skilaboða sem börn og unglinga fá frá samfélaginu og áhrif þeirra á þau.

Auglýsing

Jákvæð og góð lík­ams­mynd hefur verið tengd við góða líðan og heil­brigði. Mik­il­vægt er að stuðla að bættri  lík­ams­myndar hjá börnum og ung­lingum þar sem algengi slæmrar lík­ams­myndar er ennþá nokkuð há hér á landi þótt vís­bend­ingar séu um örlitlar breyt­ingar til batn­aðar í þeim mál­um.

Rann­sóknir sýna að þær fyr­ir­myndir sem börn og ung­linga hafa t.d úr teikni­mynd­um, tón­list­ar­mynd­böndum og Instagram geta haft mikil áhrif á þróun lík­ams­myndar og líð­an.

Mikil áhersla er lögð á grannan og/eða stæltan lík­ams­vöxt og má rekja þróun slæmrar lík­ams­myndar til þess og hve ólíkt það útlit er raun­veru­legu útliti barna og ung­linga. Mjög fá börn líkj­ast sínum fyr­ir­myndum og eru því mörg börn að bera sig saman við útlit sem fæst þeirra geta nokkurn tím­ann öðl­ast.

Auglýsing

Börn og ung­lingar fá dag­lega skila­boð frá sam­fé­lag­inu um hvaða útlit og vaxt­ar­lag þykir fal­legra og eft­ir­sókn­ar­verð­ara en ann­að. Umræður um útlit og mik­il­vægi þess og nei­kvætt umtal um aukakíló ná til barna. Fitu- og útlit­s­tal á heim­il­inu fara einnig sjaldn­ast fram hjá börn­um.

Fræði­menn hafa einnig velt fyrir sér áhrifum leik­fanga og sögu­per­sóna í barna­efni og áhrif þeirra á mótun lík­ams­mynd­ar, þar sem börn og ung­lingar bera sig saman við þær per­són­ur. Útlit þess­ara per­sóna er ólíkt útliti flestra, til að mynda eiga mörg börn Bar­bie dúkku en telja má nær ómögu­legt fyrir börn að líta út líkt og Bar­bie dúkka. Svipað má segja um bar­daga­menn­ina sem börn jafnan leika sér með og áhrif þeirra á lík­ams­mynd.Hermenn.

Und­an­farna ártugi hefur útlit ýmissa leik­fanga breyst og orðið mun óraun­hæf­ari; Bar­bie hefur grenn­st, G.I Joe er mun vöðva­meiri en hann var áður og Pony hest­arnir frægu hafa greini­lega verið sendir í megr­un. Star Wars per­són­ur, Turt­les Ninj­urnar og X-man hetjur hafa einnig gjör­breyst á und­an­förnum árum. Leik­föng og barna­efni sem er sér­stak­lega mark­aðs­sett fyrir drengi hefur stækkað og vöðvamass­inn auk­inn til muna. Efni sem mark­aðs­sett er fyrir stúlkur eins og Bar­bie og Pony hefur á sama tíma breyst mik­ið. Bar­bie hefur grennst og fríkkað og Pony hest­arnir góðu hafa grenn­st, lengst og fengið vel „beauty filt­erað“ and­lit.Barbie er ekki alveg í tengslum við veruleikann. 

Rann­sóknir benda til þess að þetta óraun­hæfa útlit leik­fanga og per­sóna í barna­efni geti haft nei­kvæð áhrif á líð­an. Börn lýsa t.d meiri óánægju með eigin lík­ams­vöxt eftir örstuttan leik með grönnu Bar­bie dúkk­unum meðan sömu áhrif finn­ast ekki þegar börn leika með ann­ars konar dúkk­ur. Svip­aðar nið­ur­stöður hafa fund­ist í rann­sóknum á bar­daga­manna leik­föng­um.

Ólíkt hug­myndum margra þá eru enda­lausu skila­boðin um hinn full­komna granna og stælta lík­ama ekki hvati til heil­brigð­ari lífs­hátta. Skila­boðin geta ýtt undir þróun slæmrar lík­ams­myndar sem hefur áhrif á heilsu og lífs­venj­ur. Þessi slæma lík­ams­mynd getur til að mynda haft þau áhrif að við hugsum verr um lík­ama okkar og grípum til óheil­brigðra megr­un­ar­að­gerða sem hafa slæm áhrif á heilsu og líð­an, bæði til lengri og skemmri tíma. Einnig getur slæm lík­ams­mynd ýtt undir kvíða, þung­lyndi og leitt til ann­arra geð­rænna vanda.

Þar sem jákvæð lík­ams­mynd er mjög mik­il­væg fyrir bætta líðan og heilsu barna er nauð­syn­legt að skoða betur tengsl þeirra skila­boða sem börn og ung­linga fá frá sam­fé­lag­inu og áhrif þeirra á þau.

Þriðju­dag­inn 13. mars fögnum við Degi lík­ams­virð­ing­ar. Í til­efni af deg­inum verður boðið upp á ókeypis fræðslu á Cafe Meskí kl. 20:00 um lík­ams­mynd og fjöl­breyttar fyr­ir­mynd­ir.

Verið öll vel­kom­in!

Höf­undur er sál­fræði­kenn­ari og vara­for­maður Sam­taka um lík­ams­virð­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar