Tálmunarmenning á Íslandi

Helga Dögg Sverrisdóttir skorar á þingmenn að taka á honum stóra sínum og hjálpa börnum að komast undan því ofbeldi sem hún segir tálmun vera.

Auglýsing
Eitt af því sem feður þessa lands þurfa að sætta sig við er ofbeldi gagn­vart barni sínu. Ofbeldið felst í að móðir tálmar umgengni til að koma í veg fyrir sam­vistir barns og föð­ur. Barn á rétt á sam­vistum við báða for­eldra sína. Barn á rétt á að njóta leið­sagnar föður jafnt og móð­ur. Barn á rétt á að lesa fyrir föður sinn og móð­ur. Barn á rétt á að njóta ástar og umhyggju föð­ur. Barn á rétt á að gráta við öxl föður sem og móð­ur. Barn á rétt á að njóta sam­vista við föður sinn sum­ar, vet­ur, vor og haust sem og um hátíð­ir.

Það að mæður telji sig rétt­hærri og geti stjórnað hvort og þá hvernig barn nýtur sam­vista við föður sinn er gegn­um­sýrt í sam­fé­lag­inu. Sorg­legra er að sam­fé­lagið og ekki síður laga­bók­staf­ur­inn verð­launar þessa ofbeld­is­seggi, á kostnað barns. Mæður velja að nota börn eins og hvert annað vopn vit­andi að þær hitta við­kvæm­asta punkt föð­ur, barn­ið. Hnífs­oddur beint í hjarta­stað.

Konur fóru mik­inn með átak­inu ,,#metoo“ og höfn­uðu ofbeldi, órétti og kyn­ferð­is­legri áreitni. Innan um allar þessar konur leyn­ast þær sem beita barn ofbeldi í formi tálm­un­ar. AF hverju spyr ég, sem móðir og amma, láta konur eins og ekk­ert sé að í mála­flokknum þegar nán­ast hver full­orðin mann­eskja í land­inu þekkir til tálm­un­ar­máls. AF hverju hundsa konur ofbeldi kyn­systra sinni á þennan hátt. AF hverju rísa alþing­is­menn ekki upp, allir sem einn, og hafna ofbeld­inu sem börn þurfa að búa við. AF hverju hafa sýslu­menn ekki tekið til í mála­flokknum og þeim þáttum sem snúa að börnum sem lenda á milli í deilu­mála for­eldra sinna. AF hverju líðst konu að kæra föður um alls kyns áreiti og kyn­ferði­lega mis­notkun á barni til að ná sér niðri á hon­um. AF hverju taka dóm­stól­arnir sig  ekki á og flýta málum sem snerta börn. Af hverju þarf for­sjár­deila að taka mörg ár...AF hverju, AF hverju!

Auglýsing

Kæru þing­menn, mæður og ömmur stöðvum ofbeld­ið.

Tálm­un­ar­menn­ing er svo algeng hér á landi að móður og ömmu­hjartað finnur til. Tálm­un­ar­menn­ing lifir nán­ast óáreitt í reglum og lögum af því of fáir þing­menn þora að taka á mál­inu. Tálm­un­ar­menn­ing lifir af því margir sam­þykkja slíkt ofbeldi. Tálm­un­ar­menn­ingu á að upp­ræta með góðu eða illu, mér þykir það ein­falt. Tálmun er heim­il­is­of­beldi  sem móðir beitir í lang­flestum til­fell­um. Tálmun er ofríki sem á ekki að launa.

Ég skora á þing­menn að taka á honum stóra sínum og hjálpa börnum að kom­ast undan slíku ofbeldi. Ekki vantar vilj­ann eftir #metoo skrið­una þegar konur eru ann­ars veg­ar. Hver passar upp á börnin í ofbeld­is­að­stæð­um? Eru það þið kæru þing­menn.

Höf­undur er grunn­skóla­kenn­ari, móðir og amma.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar