Fimmtán ára starfi kastað fyrir róða
Árið 2016 fengu á sjötta hundrað einstaklingar reglubundna þjónustu „geðheilsu-eftirfylgdar”. Það ár leituðu nær 900 einstaklingar beint til Hugarafls. Voru komur þessa fólks yfir 12 þúsund. Veitt voru yfir 2000 viðtöl (símaviðtöl ekki meðtalin), auk vitjana, þjálfunar á vettvangi og útkalla vegna bráðatilfella.Nú á að kasta fyrir róða fimmtán ára starfi þar sem brotið var blað í hjálp við þá sem þurfa á hjálp að halda vegna geðheilsu sinnar. Guðný Björk Eydal, prófessor við Fálagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, og Steinunn Hrafnsdóttir, dósent við Fálagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, telja starfið sé einstök þjónusta sem ekkert annað úrræði veitir með sama hætti. „Aðferðir sem byggja á hugmyndafræði valdeflingar og aðferðum batalíkans hafa á undanförnum árum verið grunnstef í alþjóðlegri stefnumótun í geðheilbrigðismálum,” eins og segir í greinargerð Guðnýjar Bjarkar og Steinunnar Hrafnsdóttur.
Áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar
Sem kennari hálfa öld, þar sem ég horfði upp á vanmátt nemenda sem máttu sín minna og áttu fáa úrkosti, og sem aðstandandi einstaklinga sem hafa þurft á hjálp að halda vegna geðheilsu, skora ég á forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra, Alþingi og Verferðarsvið Reykjavíkurborgar að reka af sér slyðruorðið og gefa Hugarafli kost á að vinna áfram að „geðheilsueftirfylgd”, sem er hornsteinn þjónustustarfs við þá sem glíma við geðheilsu og byggir á nýrri leið, bæði innan hins íslenska og hins alþjóðlega geðheilbrigðiskerfis.