Framtíðarmiðborgin verður í austurborginni

Oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík fjallar um skipulagsmál í aðsendri grein.

Auglýsing

Hóphugsun getur verið lævís, ekki hvað síst í póli­tísku starfi.  Í henni getur meðal ann­ars falist að rétt­mæt gagn­rýni er látin sem vind um eyru þjóta sé hún óþægi­leg og sam­ræm­ist ekki sjálfs­mynd eða heims­mynd þess hóps sem um ræð­ir. Getur verið að hug­myndir borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans um stór­kost­lega fjár­fest­ingu í sam­göngu­innviðum gangi út frá óraun­hæfri for­sendu um það að hægt verið að töfra fram 200 millj­arða til að losa um bygg­ing­ar­land í Vatns­mýr­inni og 21 millj­arð til að losna við Miklu­braut af yfir­borði jarð­ar?

Borg­ar­lína er hönnuð út frá for­sendum aðal­skipu­lags um þétta byggð í Vatns­mýri sem þurfi að þjóna með hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfi. Þessi hönn­un­ar­for­senda end­ur­spegl­ast í því að allar leiðir lín­unnar liggja niður á BSÍ. Í dag er  BSÍ stað­sett á óvist­legri umferð­ar­eyju, 56 m frá norð­ur­enda Reykja­vík­ur­flug­vall­ar, við hlið­ina á ógn­ar­stórri bens­ín­stöð. Til þess að koma helstu leggjum Borg­ar­lín­unnar niður að BSÍ þarf að skapa pláss fyrir hana frá Kringlu og með­fram Klambra­túni, en það verður ekki gert nema með því að setja núver­andi götu í jarð­göng við ærinn til­kostn­að.

Raun­hæf­ara væri að aðlaga sig þeim veru­leika að 350 þús­und manna sam­fé­lag hefur ekki efni á að eyði­leggja flug­völl sem kostar 200 millj­arða að koma á nýjan stað. Hugsum því Borga­línu upp á nýtt út frá þeirri for­sendu að fram­tíðar þunga­miðja borg­ar­innar verði á milli Kringlu­mýr­ar­brautar og Ártúns­brekku. Búum til nýjan miðbæ í aust­ur­borg­inni á stærsta og veð­ur­sælasta landmassa Reykja­vík­ur. Ekki bíl­lausa mið­borg­ar­byggð úti á hafi fyrir opnum norðan garr­anum og ekki mið­borg­ar­byggð á flug­vall­ar­stæði sem kosta mun fáheyrða fjár­muni að losa um.

Auglýsing

Hinn nýi Lauga­vegur liggi frá Hlemmi upp í nýja Voga­byggð í vegstæði Suð­ur­lands­braut­ar. Þétt­ing byggðar upp að Laug­ar­daln­um, sem verði mið­borg­ar­garð­ur­inn. Borg­ar­lína verði m.a., ólíkt því sem nú er áform­að, lögð eftir Sæbraut þar sem stór land­flæmi bíða frek­ari þró­un­ar. Atvinnu- og íbúða­upp­bygg­ingu verði flýtt við Kringlu, í Skeifu, við Borg­ar­tún­/­Kirkju­sand og með­fram Miklu­braut. Nýr Stjórn­ar­ráðs­reitur verði skipu­lagður á Veð­ur­stofulóð­inni eða á Keld­um. Vest­ur­bær­inn verði sjötta úthverfi Reykja­víkur og mið­borgin fær­ist austar, nær hinum úthverf­un­um.

Höf­undur er odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar