Sæl Svandís.
Í grein þinni, „Næstu skref“ sem birtist í Morgunblaðinu þann 16. júní síðastliðinn, var þér tíðrætt um næstu skref sem þarf að stíga til að bæta heilbrigðiskerfið. Talin voru upp mörg verkefni, bæði sem snúa að Landspítala og öðrum stofnunum. Sumarið er góður tími til að nýta í þágu heildstæðrar heilbrigðisþjónustu.
Sumarið...
Sumarið 2018 þegar Landspítali þarf að loka sérhæfðri bráðþjónustu fyrir hjartasjúklinga í 4 vikur, vegna skorts á hjúkrunarfræðingum.
Sumarið 2018 þegar fíknigeðdeild Landspítala lokar í 7 vikur, vegna manneklu
Sumarið þegar ljósmæður standa í harðri kjarabaráttu. Margar hafa sagt upp og fyrirséð að ekki verður hægt að halda uppi öruggri þjónustu fyrir fæðandi konur og nýbura eftir 1. júlí.
Sumarið þegar starfsfólk Landspítala tjáir sig opinberlega, lýsir yfir áhyggjum af ástandinu og notar setningar eins og "við erum hrædd um öryggi sjúklinga".
Sumarið sem hófst með tæplega 50 lokuðum sjúkrarýmum á Landspítala,vegna skorts á hjúkrunarfræðingum.
Sumarið þegar heimahjúkrun höfuðborgarsvæðisins hefur lýst því yfir að þau kvíði sumrinu, vegna manneklu.
Sumarið þegar fordæmalaust álag er á bráðamóttöku Landspítala, vantar að manna allt að 100 vaktir og það eina sem framundan er, er meira álag. Vonandi gerist ekkert alvarlegt.
Það er mikilvægt að byggja hús, skapa gott umhverfi, hlúa að framtíðinni. Enn mikilvægara er að hafa í huga að heilbrigðiskerfi er og verður ekki byggt upp á húsum, heilbrigðiskerfi er byggt upp af fólki.
Til að hægt sé að bjóða uppá heildstæða heilbrigðisþjónustu þarf að bæta kjör heilbrigðisstétta. Það er nú eða aldrei, sumarið er ekki bara góður tími, það er mögulega eini tíminn sem við höfum.
Höfundur er hjúkrunarfræðingur og formaður hjúkrunarráðs Landspítala.