Opið bréf til heilbrigðisráðherra

Marta Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur og formaður hjúkrunarráðs Landspítala svarar grein Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og segist vona að ekkert alvarlegt gerist á Landspítalanum í sumar þar sem vantar að manna um 100 vaktir.

Auglýsing

Sæl Svan­dís.

Í grein þinni, „Næstu skref“ sem birt­ist í Morg­un­blað­inu þann 16. júní síð­ast­lið­inn, var þér tíð­rætt um næstu skref sem þarf að stíga til að bæta heil­brigð­is­kerf­ið. Talin voru upp mörg verk­efni, bæði sem snúa að Land­spít­ala og öðrum stofn­un­um. Sum­arið er góður tími til að nýta í þágu heild­stæðrar heil­brigð­is­þjón­ustu.

Sum­ar­ið...

Auglýsing

Sum­arið 2018 þegar Land­spít­ali þarf að loka sér­hæfðri bráð­þjón­ustu fyrir hjarta­sjúk­linga í 4 vik­ur, vegna skorts á hjúkr­un­ar­fræð­ing­um.

Sum­arið 2018 þegar fíknig­eð­deild Land­spít­ala lokar í 7 vik­ur, vegna mann­eklu

Sum­arið þegar ljós­mæður standa í harðri kjara­bar­áttu. Margar hafa sagt upp og fyr­ir­séð að ekki verður hægt að halda uppi öruggri þjón­ustu fyrir fæð­andi konur og nýbura eftir 1. júlí.

Sum­arið þegar starfs­fólk Land­spít­ala tjáir sig opin­ber­lega, lýsir yfir áhyggjum af ástand­inu og notar setn­ingar eins og "við erum hrædd um öryggi sjúk­linga".

Sum­arið sem hófst með tæp­lega 50 lok­uðum sjúkra­rýmum á Land­spít­ala,­vegna skorts á hjúkr­un­ar­fræð­ing­um.

Sum­arið þegar heima­hjúkrun höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur lýst því yfir að þau kvíði sumr­inu, vegna mann­eklu.

Sum­arið þegar for­dæma­laust álag er á bráða­mót­töku Land­spít­ala, vantar að manna allt að 100 vaktir og það eina sem framundan er, er meira álag. Von­andi ger­ist ekk­ert alvar­legt.

Það er mik­il­vægt að byggja hús, skapa gott umhverfi, hlúa að fram­tíð­inni. Enn mik­il­væg­ara er að hafa í huga að heil­brigð­is­kerfi er og verður ekki byggt upp á hús­um, heil­brigð­is­kerfi er byggt upp af fólki.

Til að hægt sé að bjóða uppá heild­stæða heil­brigð­is­þjón­ustu þarf að bæta kjör heil­brigð­is­stétta. Það er nú eða aldrei, sum­arið er ekki bara góður tími, það er mögu­lega eini tím­inn sem við höf­um.

Höf­undur er hjúkr­un­ar­fræð­ingur og for­maður hjúkr­un­ar­ráðs Land­spít­ala.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar