Aukinn jöfnuður

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingmaður Vinstri grænna skrifa um útgjaldaaukningu ríkisstjórnarinnar sem hún segir að sé til að auka jöfnuð í samfélaginu.

Auglýsing

Fjár­mála­á­ætlun mætti gagn­rýni þar sem sumir vildu meiri útgjöld. Öðrum þóttu útgjöldin of mik­il. Sömu raddir heyr­ast í dag um fjár­lög árs­ins 2019, en við sem að mál­inu stöndum teljum að þrátt fyrir að útgjöld séu aukin veru­lega séum við ekki að eyða um efni fram.

En hluti þess­arar mikla útgjalda­aukn­ingar er til að auka jöfnuð í sam­fé­lag­inu. En það er ekki aðeins mik­il­vægt fyrir þá sem eru verst sett­ir, heldur varðar  það okkur öll. Í jafn­ari sam­fé­lögum lifir fólk leng­ur, börnum gengur betur í skóla og fólki líður almennt bet­ur.

Í öðrum fjár­lögum rík­is­stjórn­ar­innar er m.a. lögð áhersla á auk­inn stuðn­ing við börn og barna­fjöl­skyldur og hækkun greiðslna til for­eldra í fæð­ing­ar­or­lofi . Þá gerum við breyt­ingar á tekju­skatts­kerf­inu í átt til meira rétt­læt­is.

Auglýsing

Við styðjum við barna­fólk

Við for­gangs­röðum í þágu barna og tekju­lágra fjöl­skyldna enda á ekk­ert barn að þurfa að búa við skort. Um það erum við öll sam­mála, að slíkt eigi ekki að líð­ast í okkar ríka landi. Ég hef líka þá trú að við séum öll sam­mála um það að fólk sem vinnur fulla vinnu, þótt það sé á lágum laun­um, á aldrei að þurfa ala börn sín upp í fátækt. Rík­is­stjórnin vill leggja sitt af mörkum til að tryggja það og stígur hér fyrsta skrefið í breyt­ingu á sam­spili tekju­skatts- og bóta­kerfa. Lögð er til aukn­ing á barna­bót­um, þar sem fjár­hæða og við­mið­un­ar­mörk eru hækk­uð, sem á að skila sér til tekju­lægri hópa, við­mið­un­ar­fjár­hæðir vaxta­bóta eru hækk­aðar og per­sónu­af­slátt­ur­inn er hækk­aður umfram vísi­tölu enda kemur það tekju­lágum betur heldur en flöt lækkun skatta.  Við viljum for­gangs­raða til þeirra sem þurfa.

Rétt­lát­ara sam­fé­lag

Við í Vinstri­hreyf­ing­unni grænu fram­boði viljum að allir spili eftir sömu regl­um. Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur bent á það órétt­læti að þegar laun á hátekju­fólk hækk­aði umfram verð­lag þá breytt­ist skatt­byrði þess ekki, en þegar laun á lágar tekjur hækk­uðu umfram verð­lag þá hækk­aði skatt­byrði þess. Með því að tengja efra skatt­þrep við neyslu­vísi­tölu gengur hið sama yfir alla.

Allt eru þetta aðgerðir til þess að skapa hér rétt­lát­ara og betra sam­fé­lag. Við í Vinstri­hreyf­ing­unni grænu fram­boði sögðum fyrir kosn­ingar að við vildum stuðla að mann­sæm­andi kjörum og friði á vinnu­mark­aði. Við hófum þá veg­ferð strax með fyrstu fjár­lögum rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur og bætum um betur í þessum fjár­lögum og við munum halda áfram og gera enn bet­ur.

Höf­undur er þing­maður Vinstri grænna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar