Styttum vinnuvikuna í Garðabæ

Oddviti Garðabæjarlistans vill að vinnuvikan í sveitarfélaginu verði stytt og þar verði fyrst horft til starfsfólks á leikskólum bæjarins. Bretta þurfi upp ermar og sýnda kvennastéttum að staðið sé með þeim.

Auglýsing

Stytt­ing vinnu­vik­unnar hefur mikið verið til umfjöll­unar und­an­farin miss­eri og hafa t.d.  Reykja­vík­ur­borg og Hjalla­stefnan á leik­skóla­stigi sett slíkar til­raunir af stað með starfs­fólki sínu. Þær hafa leitt í ljós að full ástæða er til að halda áfram á þeirri braut og festa í sessi slíkt fyr­ir­komu­lag. Garða­bæj­ar­list­inn leggur til að bæj­ar­stjórn Garða­bæjar stefni að því að stytta vinnu­viku starfs­manna bæj­ar­ins.

Með stytt­ingu vinnu­vik­unnar til að mynda á leik­skólum Hjalla­stefn­unnar er raunin sú að almennt minnkar fjar­vera starfs­fólks og stöð­ug­leiki eykst, sem eru gríð­ar­lega mik­il­vægir þættir í lífi barna á leik­skóla­aldri. Stytt­ing vinnu­vik­unnar er ekki síður mik­il­vægur þáttur fyrir aukin lífs­gæði starfs­fólks­ins. Kraft­mikil umræða um bætt kjör kvenna­stétta hefur hreyft við aðilum vinnu­mark­að­ar­ins og leitt af sér frek­ari umræðu um kjör þess­ara stétta almennt. Rétt er að halda því til haga að fjöl­menn­ustu kvenna­stétt­irnar eru einmitt þær stéttir sem tryggja und­ir­stöður hvers sam­fé­lags.

Starfs­fólk á leik­skólum er stór og dýr­mætur hluti af mannauði hvers sveit­ar­fé­lags. Á leik­skólum er mikið áreiti og álag. Starfs­fólk er eðli máls­ins sam­kvæmt bundið við það mik­il­væga verk­efni að sinna börn­um, sem veitir lítið svig­rúm til þess að taka stutt hlé frá störf­um, líkt og þeir sem t.d. vinna  hefð­bundin skrif­stofu­störf hafa tæki­færi til.

Auglýsing

Við viljum öll búa sem allra best að börnum á leik­skóla­aldri. Í því felst að starfs­um­hverfið sé aðlað­andi og eft­ir­sókn­ar­vert. Reynsla af stytt­ingu vinnu­vik­unnar sýnir að starfs­á­nægja eykst, en um leið skap­ast stöð­ug­leiki í við­veru og sá stöð­ug­leiki skapar festu og öryggi fyrir börnin og dregur úr kostn­aði við afleys­ing­ar, svo dæmi séu tek­in.

Garða­bæj­ar­list­inn leggur ríka áherslu á bættan aðbúnað kvenna­stétta, sam­hliða áherslum á leið­rétt­ingu á kjörum þeirra stétta. Stytt­ing vinnu­vik­unnar ýtir undir meiri starfs­á­nægju, sem eykur lífs­gæði og bætir and­lega líð­an.

Mannauður til fram­tíðar

Garða­bæj­ar­list­inn leggur til að stefnt verði að því að stytta vinnu­viku starfs­manna Garða­bæjar og mun leggja fram til­lögu í þá veru. Þá leggur Garða­bæj­ar­list­inn jafn­framt til, að við slíka stytt­ingu vinnu­vik­unnar verði fyrst horft til starfs­fólks á leik­skólum bæj­ar­ins og hvetur til sam­starfs við stjórn­endur um hvernig best sé að skipu­leggja slíkar breyt­ing­ar.

Með til­lög­unni vill Garða­bæj­ar­list­inn axla ábyrgð og sýna að honum er full alvara að hefja til rétt­mætrar virð­ingar þau störf, sem eru okkur ekki aðeins svo mik­il­væg í dag heldur er ljóst að munu aldrei hverfa úr sam­fé­lagi okk­ar, hvað sem líður svo­kall­aðri fjórðu iðn­bylt­ingu. Við viljum styðja starfs­fólk leik­skóla til enn betri starfa, með betri aðbún­aði. Það er alltaf hægt að gera betur og þá er engin ástæða til ann­ars en að bretta upp ermar og sýna kvenna­stéttum - og öllum mannauði Garða­bæj­ar, að við stöndum með þeim.

Höf­undur er odd­viti Garða­bæj­ar­list­ans í Garða­bæ.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar