Heilbrigðisstefna til framtíðar

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar um heilbrigðisstefnu þar sem lögð verður áhersla á jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag og búsetu fólks og á skynsamlega nýtingu almannafjár.

Auglýsing

Eitt mark­miða stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur er vinnsla heil­brigð­is­stefnu. Í stjórn­ar­sátt­mál­anum segir að rík­is­stjórnin muni full­vinna heil­brigð­is­stefnu fyrir Ísland með hlið­sjón af þörfum allra lands­manna og skil­greina betur hlut­verk ein­stakra þátta innan heil­brigð­is­þjón­ust­unnar og sam­spil þeirra. Vinna við gerð heil­brigð­is­stefn­unnar stendur yfir í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu og framundan er sam­ráðs­ferli vegna stefnu­mót­un­ar­vinn­unar þar sem full­trúar hag­hafa, almenn­ings og fleiri aðilar verða boð­aðir til að taka þátt í þess­ari mik­il­vægu vinnu.

Við gerð stefn­unnar verður meðal ann­ars horft til stefnu­mörk­unar í heil­brigð­is­þjón­ustu hjá nágranna­löndum okk­ar, ráð­legg­inga Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unar (WHO) og skýrslum Rík­is­end­ur­skoð­unar um íslenska heil­brigð­is­kerf­ið. Lögð verður áhersla á jafnt aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu, óháð efna­hag og búsetu fólks og á skyn­sam­lega nýt­ingu almanna­fjár.

Auglýsing

Lyk­il­við­fangs­efni heil­brigð­is­stefn­unnar eru til að mynda stjórnun og sam­hæf­ing við veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu, hvernig við stuðlum að því að heil­brigð­is­þjón­usta sé veitt á við­eig­andi þjón­ustu­stigi, hvernig við tryggjum að sjúk­lingar og aðstand­endur séu virkir not­endur heil­brigð­is­þjón­ustu og geti tekið ákvarð­anir um með­ferð byggða á réttum upp­ýs­ing­um, gæða­kröfur til heil­brigð­is­þjón­ustu, hvernig standa eigi að menntun heil­brigð­is­starfs­fólks og tryggja nægan mann­afla í heil­brigð­is­kerf­inu, vís­inda­starf og nýsköpun og fleira.

Breið póli­tísk sam­staða um inni­hald stefn­unnar er lyk­il­at­riði. Í stefn­unni verður þar af leið­andi

umfjöllun um skipu­lag og upp­bygg­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins til lengri fram­tíð­ar. Áhersla verður lögð á heil­brigð­is­kerfið og inn­viði þess, en ekki heilsu og vellíðan í víðum skiln­ingi, enda hefur lýð­heilsu­stefna nú þegar verið sam­þykkt á Alþingi.

Í næstu viku verða stofn­anir ráðu­neyt­is­ins kall­aðar til sam­vinnu um efni og áherslur nýrrar heil­brigð­is­stefnu. Drög að stefn­unni verða svo kynnt og rædd frekar á heil­brigð­is­þingi í byrjun nóv­em­ber. Í fram­haldi af þeirri vinnu verða drögin gerð aðgengi­leg til umsagnar í sam­ráðs­gátt og að lokum mótuð til­laga til þings­á­lykt­unar um heil­brigð­is­stefnu  sem áformað er að leggja fyrir Alþingi á vor­þingi.

Kallað hefur verið eftir skýrri stefnu­mótun í  heil­brigð­is­kerf­inu í all­langan tíma. Ég er stolt af því að fá tæki­færi til að hrinda vinnu við gerð heil­brigð­is­stefnu í fram­kvæmd, og er þess full­viss að gerð og sam­þykkt heil­brigð­is­stefnu mun leiða til betri heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir sam­fé­lagið allt.

Höf­undur er ráð­herra heil­brigð­is­mála.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar