Kaffitímaspjall

Soffía Sigurðardóttir segir að sú tillaga SA að mæta kröfum um styttingu vinnutíma verkafólks með því að stytta kaffitímana eða fella þá alveg niður, komi frá stjórnendum sem kunni ekki að vinna.

Auglýsing

Mik­il­væg­asti vinnu­tím­inn á hverjum vinnu­stað er í kaffi­tíma­spjall­inu. Að borða saman er veiga­mikil félags­leg athöfn sem bætir tengsl þeirra sem saman koma. Þar til við­bótar eru þessir afmörk­uðu og óform­legu fundir sam­starfs­fólks á kaffi­stof­unni skil­virkasta leiðin til að miðla reynslu, upp­lýs­ingum og hug­mynd­um, koma á fram­færi kvört­unum og stinga upp á úrbót­um.

Vinnu­staður sem á ekki góða kaffi­stofu er ekki góður vinnu­stað­ur.

Á góðum vinnu­stað vinnur fólk sem deilir sam­eig­in­legum áhuga á við­fangs­efnum vinnu­stað­ar­ins. Það þarf ekki að vera svo að fólk tali bara um vinn­una í kaffi­tímunum og á endi­lega ekki að vera svo. Allir tím­arnir sem fara í að spjalla um dag­inn og veg­inn, spyrja ráða og miðla reynslu af mat­reiðslu, barna­upp­eldi og bíla­við­gerðum eða segja sögur af sveit­ungum og ferða­lög­um, allir þeir tímar virkja tengsla­myndun sam­starfs­fólks­ins og til­finn­ing­una fyrir að vera hluti af heild.

Auglýsing
Sérhver vinnu­staður er sam­starfs­verk­efni allra þeirra sem þar vinna. Þegar fólk sér sig og sam­starfs­fólk sitt sem sam­herja á vinnu­stað þá er það af því það hefur sjálft áhuga á starfi sínu og deilir þeim áhuga með áhuga­sömu sam­starfs­fólki. Þá verður til sam­tal um stórt og smátt í starf­inu, þar miðl­ast upp­lýs­ingar um fram­gang verks, biluð tæki, til­lögur að úrlausnum, áminn­ingar um það sem þurfi að gæta að, hug­myndir um nýj­ung­ar, lausnir á sam­skipta­vanda, hvatn­ing, hrós og skammir yfir því sem miður hefur far­ið. Áhuga­samt fólk sækir sér líka upp­lýs­ingar utan vinnu­stað­ar­ins og á kaffi­stof­unni miðlar það reynslu frænda síns eða frú Gúgglu um fram­leiðslu­að­ferð­ir, tækninýj­ung­ar, upp­eld­is­kenn­ing­ar, kennslu­efni, vís­inda­rann­sókn­ir, ræst­inga­vörur og mark­aðstæki­færi.

Góðir stjórn­endur eru þátt­tak­endur á kaffi­stof­unni og kunna að nýta hana bæði til að hlusta og til að miðla. Þess vegna á kaffi­stofan að vera sam­eig­in­legt rými allra starfs­manna, stjórn­enda, sér­fræð­inga og allra hinna. Mik­il­væg­asta aðsetur þró­un­ar­deildar vinnu­staðar er kaffi­stofa hans. Með góðri kaffi­stofu má spara heil­mik­inn tíma í und­ir­bún­ing form­legra starfs­manna­funda og sam­an­lögðum tíma allra þeirra sem sitja þá. Á kaffi­stof­unni kemur líka svo margt fram sem aldrei kæmi fram á form­legum starfs­manna­fundi af því form þeirra hentar ekki öll­um.

Sú til­laga SA að mæta kröfum um stytt­ingu vinnu­tíma verka­fólks með því að stytta kaffi­tím­ana eða fella þá alveg nið­ur, kemur frá stjórn­endum sem kunna ekki að vinna. Fólk sem kann ekki að vinna á ekki að fást við að stjórna vinnu­stöð­um. Það endar bara á því að reita hár sitt og ráða almanna­tengil til að skrifa fyrir sig afsök­un­ar­bréf sem endar á VÁ!



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar