Ég er einn af þeim

Þröstur Ólafsson skrifar um að hann sé einn af þeim, í tilefni af áttræðisafmæli Jóns Baldvins Hannibalssonar.

Auglýsing

Ég er einn af þeim  sem stóð að útgáfu og söfnun afmælis heilla­óska á bók um fram­tíð jafn­að­ar­stefnu, aðkomu Íslands að sjálf­stæð­is­málum Eystra­salts­ríkj­anna og aðild lands­ins að samn­ingnum um EES. Sú bók er ekki aðeins ómissandi heim­ild um heims­sögu­lega atburði heldur mik­il­vægt  sýn­is­horn um stjórn­mála­hugsun og póli­tískan feril Jóns Bald­vins. Eng­inn íslenskur stjórn­mála­maður hefur ritað ítar­legar og skarpar um stjórn­mála­hug­sjón sína á lýð­veld­is­tíma en Jón Bald­vin.

Ég er einn af þeim sem ákváðu að hætta við og fresta útgáfu bók­ar­innar vegna þess að and­rúm­loftið í sam­fé­lag­inu var lævi blandið og umræðan um höf­und­inn  drif­inn áfram af hatri sem var­huga­vert er að fara á fjör­urnar við.

Ég er einn af þeim sem telur að nú sé komið nóg. Allt hefur sinn tíma og sín tak­mörk. Líka mann­orðs­her­ferð, þar sem mark­miðið virð­ist  ekki bara vera að koma höggi á við­kom­andi heldur að leggja hann að velli, ræna hann ærunni. Gera hann útlægan í eigin landi. Þeir sem telja Jón Bald­vin hafa brotið á sér, eiga skil­yrð­is­laust að leita réttar síns. Við lifum enn í rétt­ar­ríki – ekki lýð­veldi göt­unn­ar. Hann verður að lúta nið­ur­stöðu rétt­vís­innar eins og hver ann­ar.

Auglýsing

Ég er einn af þeim  sem tók þátt í and­ófi og upp­steiti náms­manna í Vestur Berlín í upp­hafi sjö­unda ára­tugs lið­innar ald­ar. Þar voru mörg borg­ara­leg gildi brotin í spað og ein­stak­lingum ögrað. Ég fylgd­ist með hvernig fjöl­miðla­veldi Sprin­gers lagð­ist af alefli gegn for­ystu­mönnum hreyf­ing­ar­inn­ar, ofsótti þá, rústaði mann­orði þeirra og gerði þá útlæga úr mann­legu sam­fé­lagi. einn hafði upp­tendr­ast svo af óhróðri og upp­spuna Sprin­ger­pressunnar að hann fann sig knú­inn til að reyna að losa þjóð­fé­lagið við þennan ófögnuð og skaut Rudí Dutchke á götu. Við rétt­ar­höld yfir byssu­mann­inum kom fram að sú afskræmda mynd sem fyrr­nefndir fjöl­miðlar gáfu af stúd­enta­leið­tog­anum  hafði myrkvað huga byssu­manns­ins svo, að hann leit nán­ast á það sem sam­fé­lags­legt líkn­ar­mál að koma R.D. fyrir katt­ar­nef. Hann var orð­inn rétt­dræp­ur. Hann varð aldrei samur og jafn og beið að lokum bana af sár­un­um.

Ég er einn af þeim sem fylgd­ist með afdrifum ýmissa ann­arra leið­andi ein­stak­linga úr bar­áttu okkar stúd­ent­anna á árunum fyrir 1968. Sumir þeirra voru hund­eltir svo að þeirra beið ekk­ert  nema útskúfun og atvinnu­bann. Einn þeirra hafði gengið fram af heið­virðu fólki með því að koma á fót komm­únu og stofna þannig til óhefð­bund­ins og „ósið­legs” sam­lífis karla og kvenna. Ummæli hans og athafnir þóttu sanna að þarna færi stór­hættu­legur mað­ur. Útskúfunin tókst. Hann ein­angr­að­ist  og vesl­að­ist upp. Þá var oft vitnað til lýðs­ins sem hrækti á Krist og fékk hann kross­fest­an. Göbbels hafði rétt fyrir sér. Ef klifað er nóg­sam­lega á sömu full­yrð­ing­unni, þótt upp­spuni sé, verður henni trú­að.

Ég er einn af þeim sem átti aðild að aðgerðum íslenkra stúd­enta í sendi­ráðum lands­ins á Norð­ur­löndum í sum­ar­byrjun 1970. Sem for­m­aðu SÍNE hafði ég nokkuð afger­andi áhrif á að íslenskir stúd­entar erlendis efldu til and­ófs­að­gerða. Þrátt fyrir harka­leg við­brögð sumra fjöl­miðla vegna þeirrar „smánar “sem þjóð­inni var sýnd, hófst ekk­ert gjörn­inga­veður gegn ein­stak­ling­un­um, engar ofsóknir . Mig minnir þó að eitt blað hafi reynt að gera sér bragðvondan mat úr þessu. For­ystu­fólk íslenskra stjórn­mála og fjöl­miðla lét kjurt liggja. Það sýndi þroska, yfir­vegun og hóf­semi.

Ég er einn af þeim sem tel Jón Bald­vin vera einn af merkustu, íslensku stjórn­mála­mönnum lið­innar ald­ar, því verk hans hafa skipt þjóð­ina milku máli og fært okkur mikla hag­sæld. Hann er auk þess eini íslenski stjórn­mála­mað­ur­inn sem er þekkt­ur, virtur og dáður erlend­is. Samn­ing­ur­inn um EES var afar umdeildur á sínum tíma, svo ekki sé meira sagt. Hann hefur fært Íslend­ingum meiri vel­megun og rétt­ar­bætur en nokkur annar samn­ingur sem við höfum gert frá fyrra stríði. Fyrir það var JBH bor­inn þungum sök­um; haugar af óhróðri og lygum hrönn­uð­ust upp­.Honum var hótað líf­láti. Eldur bor­inn að húsi hans. Land­ráða­maður !

Ég er einn af þeim sem veit að Jón Bald­vin er ekki heil­agur mað­ur. Hann er harður í horn að taka og getur verið óvæg­inn. Þrátt fyrir þær ásak­anir sem á honum hafa dun­ið, og eng­inn nema hann og þær sem ásaka geta með vissu vit­að, hvort eru réttar eða ekki, hefur það verið Íslandi mikið happ að hann skyldi hafa verið til stað­ar, þegar við urðum að ákveða hvaða leið við áttum að velja í Evr­ópu­mál­um. Ásamt flokki sínum leiddi  Jón Bald­vin þjóð­ina inn í EES. Allir aðrir flokkar höfðu snú­ist eins og skopp­ara­kringlur í mál­inu að Kvenna­list­anum einum und­an­skild­um, sem alltaf var á móti. Í gegnum þykkt og þunnt stóð hann með og barð­ist fyrir frelsis­kröfum Eystra­salts­ríkj­anna, einn for­ystu­manna vest­rænna þjóða.Það var ekki gert til að vernda íslenska hags­muni, þvert á mót­i.­Fyrir þetta tvennt hefur hann hér heima ekki fengið þá við­ur­kenn­ingu sem skyldi. Bókin átti að vera þessi þakk­læt­is­vott­ur. Alþekkt er að háar byggingar varpa af sér löngum skugga.

Ég er einn af þeim sem óska Jóni Bald­vini til ham­ingju með átt­ræð­is­af­mæl­ið. Við hjónin þökkum ára­langa vin­áttu sem og ein­stakt fram­lag hans  til íslenskra stjórn­mála. Hvor­ugt fyrn­ist.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar