Samsæri lögregluforingja

Ómar S. Harðarson segir samninga tveggja lögreglustjóra við þrettán undirmenn sína vera eins og hvert annað siðlaust samsæri um sjálftöku úr opinberum sjóðum. Það sé lágmarkskrafa að þeir verði allir látnir hætta störfum tafarlaust.

Auglýsing

Nýlega bár­ust fréttir um að tólf aðstoð­ar- og yfir­lög­reglu­þjónar hjá rík­is­lög­reglu­stjóra og einn hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum hefðu fengið 50 yfir­vinnu­tíma fellda inn í fasta­laun sín þannig að eft­ir­launin yrðu mun hærri – en líf­eyrir í B-deild LSR er reikn­aður af dag­vinnu­launum ein­göngu. Vita­skuld vilja aðr­ir, óbreytt­ir, lög­reglu­menn fá hið sama en það yrði ekki auð­sótt. Hér er nefni­lega ekki um eðli­lega gjörn­inga að ræða.

Á þessu ári brast öðrum lög­reglu­mönnum loks­ins þol­in­mæðin gagn­vart Har­aldi Johann­essen, þess sem gegnir emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra. Til hans bera menn ekki lengur opin­ber­lega traust, þótt það hafi vænt­an­lega verið löngu farið áður. 

Lausnin sem dóms­mála­ráð­herra fann til að setja mann­inn á eft­ir­laun er sú að stokka upp í skipu­lag­inu, sam­eina emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra og lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ein­hverra hluta vegna er til­lagan líka sú að færa hluta af emb­ætt­inu á Suð­ur­nesjum undir höf­uð­borg­ar­svæðið og fækka í yfir­stjórn.

Auglýsing
Ég er ekki í vafa um að til­laga þessi verði til bóta. Við­brögð í emb­ætt­unum sem verða einkum fyrir barð­inu — ef svo má segja — á þessum skipu­lags­breyt­ingum eru hins vegar for­kast­an­leg. Yfir­menn­irnir sem lík­leg­astir eru til að verða settir af ná skyndi­lega og fyr­ir­vara­laust fram breyt­ingum á launa­kjörum sínum þannig að 50 fastir yfir­vinnu­tímar eru settir inn í fasta­laun­in. Það hefur engin áhrif á launin nú, en því meiri á eft­ir­laun­in. Yfir­vinnu­tími reikn­ast sem 1,0385% af mán­að­ar­laun­um.

Þegar þeir fara á eft­ir­laun, sem vænt­an­lega verður fljót­lega (en þó örugg­lega ekki fyrr en eftir 2 ár – því þannig eru regl­urn­ar), fá þeir því um 52% hærri eft­ir­laun en þeir hefðu fengið fyrir breyt­ingu. Og alveg ókeypis – þar sem þeir hafa hingað til aðeins greitt iðgjöld til B-deildar líf­eyr­is­sjóðs opin­berra starfs­manna (LSR) af dag­vinnu­laun­un­um.

Þetta er leyfi­legt, segir dóms­mála­ráð­herra. Það er hins vegar ekk­ert eðli­legt hér á ferð­inni.

Við hin sem árið 1997 völdum á milli þess hvort við vildum vera í A-deild LSR frekar en áfram í B-deild­inni vorum grun­laus um að þau okkar sem standa nærri sið­ferð­is­þreklausum yfir­mönnum gætu á síð­ustu stundu fengið vænt eft­ir­laun hækkuð um 52% án þess að hafa meira fyrir því en eina und­ir­skrift.

„Launa­samn­ing­ar“ þessir sem Har­aldur Johann­es­sen og Ólafur Helgi Kjart­ans­son hafa gert við þrettán und­ir­menn sína eru að mínu mati eins og hvert annað sið­laust sam­særi við­kom­andi lög­reglu­for­ingja um sjálftöku úr opin­berum sjóð­um. Ólík­legt er lögum verði komið yfir 15-­menn­ing­anna. Það er hins vegar lág­marks­krafa að þeir verði allir látnir hætta störfum taf­ar­laust.

Höf­undur hefur greitt 4% af heild­ar­launum til LSR síðan 1997.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar