Hey, slaka smá!

Sigrún Edda Sigurjónsdóttir skrifar um vinkonuhitting ráðherra.

Auglýsing

Það verður bara að teljast mjööög ó­lík­legt að hún Þór­dís, ferða­mála- & alt mulig­hed - ráð­herr­ann okkar hefði vaðið í þessi ósköp, sem þessi lang­þráð­i æsku­vin­konu­hitt­ing­ur hefur nú snú­ist ­upp í í, nema að hafa hugsað það til enda. Við erum loks­ins að ­sjà nýja tíma í póli­tík; fólk sem er treystandi, fólk sem axlar ábyrgð á sínum gjörð­u­m os­frv. Þór­dís hefði aldrei, ekki sem sitj­andi ráð­herra í þess­ari rík­is­stjórn, farið að brjóta regl­urnar sem sama rík­is­stjórn setti fram í sam­starfi við þrí­eykið góða. 

Þarna eru átta vin­konur saman komn­ar. Ein er ráð­herra og sem slíkur er meiri pressa á henni að sýna gott for­dæmi. Hún veit hversu mik­il­vægt það er að þeir sem sitja við völdin í þessu landi sýni það, ekki bara í orðum heldur það sem mik­il­væg­ara er, í gjörð­um. Að við sitjum öll við sama borðið - í bar­átt­unn­i við veiruna það er að segja. 

Gefum okkur að vin­kon­urnar átta eigi að með­al­tali tvö börn á haus. 3x8 (döm­urnar taldar með) gefa okkur 24 ein­stak­linga. Legg áherslu á að hér er um laus­lega og létt gef­inn útreikn­ing að ræða, óþarfi að festa sig í stað­reynda-smá­at­riðum (fleiri/­færri börn, mak­i/eng­inn mak­i). Áfram gakk.

Auglýsing
Átta heim­ili; tutt­ugu og fjórir ein­stak­ling­ar, átta vinnu­stað­ir, átta leik­skól­ar, fimm leikja­nám­skeið, þrjár félags­mið­stöðv­ar. Aftur ítreka ég að smá­at­riði eru skáld­uð, í guð­anna bænum farið ekki að fest­ast í þeim! Finnst ykkur í alvöru lík­legt að ráð­herr­ann sem um ræðir hafi ekki gert ein­hvers­konar grein­ingu á högum allra sjö æsku­vin­kvenna sinna áður en hún mat það síðan öruggt að mæta í gleð­skap­inn? Hún veit að annað væri hræsni. Þetta var heldur eng­inn gleð­skapur þannig lag­að. Er það ekki svo­lítið beiskt og fyrir neðan belt­is­stað að ætla að fara að kalla það eitt­hvað „djamm“, þegar fólk er að skila sér heim fyr­ir mið­nætti?

Eins og ­sótt­varna­lækn­ir benti okkur líka rétti­lega á í gær, þá er tveggja metra reglan meira fyrir rekstr­ar­að­ila að passa upp á. Það má alveg hitta þá sem mann langar að hitta, sér­stak­lega ef þú þekkir við­kom­andi og veist alveg að hann er ekk­ert smit­að­ur. Og þú veist að fjöl­skylda við­kom­andi er ekki heldur smituð því þú auð­vitað spyrð og við­kom­andi full­vissar þig um að eng­inn í hans nærum­hverfi sé búinn að sýna ein­kenn­i. 

Nú, og þegar við höfum hugsað þetta yfir með smá skyn­semi, vit­andi allt þetta, eins og Þór­dís vissi pott­þétt, nýbúin að segja í við­tali að okkar eigin hegðun skipti mestu máli í veiru­bar­átt­unni, er þá ekki aug­ljóst að þetta var, í versta falli, „óheppi­legt“ eins og Bjarni komst svo gæti­lega að orð­i? 

Það gæti reyndar verið gagn­legt að ræða eitt annað sem, í besta falli,  gæti talist „óheppi­legra“ í þessu öllu saman og það er plagg­ið. Þið vitið - regluplaggið - þetta sem gleymd­ist að ­próf­arka­les­a áður en það var sent í prent og almenna net­birt­ing­u: Af covid.is.

En núna kannski vitum við bet­ur. Skiljum að það þýðir ekk­ert fyrir okkur að ætla bara að lesa text­ann eins og hann er mat­reiddur ofan í okk­ur. Við verðum að geta verið svo­lítið sveigj­an­leg með túlk­un­ina lík­a. 

Höf­undur er með BA-gráðu í sál­fræði og starfar hjá heima­­þjón­­ustu Reykja­vík­­­ur­­borg­­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar